Geðraskanir barna

Áhættuþættir og  aðgerðir
Framfarir  síðustu  ára á sviði taugasálfræði og atferlisfræði hafa leitt í ljós  mikilsverðar  upplýsingar  sem  foreldrar,  kennarar,  barnalæknar og sálfræðingar  geta  nýtt  sér  til að hnitmiða aðstoð við börn í mismunandi vanda  og  fyrirbyggja  geðraskanir.  Rannsóknir á hvaða þættir það eru sem auka  áhættu  á  geðrænum  erfiðleikum  barna  eru mikilvægar af mismunandi ástæðum:

  1. Vitneskja um hvaða þættir eru að baki ákveðinna erfiðleika auðveldar skilning á hvernig þessi erfiðleikar þróast.
  2. Hægt er að sýna fram á áhættuhópa.
  3. Skilningur á mismunandi áhrifum álagsþátta leiðbeinir um hvaða aðgerðum þarf að beita við mismunandi aðstæður til að fyrirbyggja geðræna erfiðleika.
  4. Hægt er að nota rannsóknir til að ákvarða hvernig fjármagnið til málaflokksins skili sér í sem bestum árangri.

Margar  nýlegar  rannsóknir  hafa  sýnt  fram  á  að  bæði líffræðilegir og félagslegir/ uppeldislegir þættir í æsku leiða til geðrænna erfiðleika barna  án þess að um beint orsakasamband sé að ræða.

Hjá  þeim  börnum  sem  verða  verst  úti  hafa yfirleitt, ef svo má segja, „safnast  saman"
erfiðleikar  af  ýmsum  toga  heima,  í  skólanum  eða  í samfélaginu,  t.d.  veikindi,  fjölskylduerfiðleikar,  einelti og ýmiskonar önnur  erfið reynsla. Margar rannsóknir sýna að sterkar líkur eru á að börn sem  eiga  í svona „fjölþættum erfiðleikum" séu í mikilli áhættu að farnast illa í lífinu almennt. (Sjá P. Jörgensen: Risikobörn. Hvem er de? hvad gör vi?,  Kaupmannahöfn  1993).

Mest  áberandi  áhættuþættirnir  eru:  áföll á meðgöngu  eða  í  fæðingu,  arfgeng tilhneiging til geðrænna erfiðleika eða skapgerðarbrests,  ytri  þættir  eins  og  fátækt,  vanörvun,  misnotkun og vanræksla,  ófullnægjandi  tengsl  við nánustu ættingja,  geðsjúkdómar foreldra, vímuefnaneysla og  áföll af ýmsum toga.

Að fyrirbyggja geðræna erfiðleika
Mikilvægt er að vinna að því að fyrirbyggja geðræna erfiðleika og stuðla að geðrænu heilbrigði með því að hlynna að börnum frá unga aldri, því geðrænir erfiðleikar fullorðinna tengjast ótvírætt erfiðleikum sem þeir hafa átt við að stríða sem börn.

Þekkingin á fyrirbyggjandi aðgerðum hefur aukist mjög á undanförnum árum. Þannig vitum við í dag:

  • að við höfum möguleika á að draga úr áhættuþáttum,

  • að við getum komið í veg fyrir geðræna erfiðleika (t.d. þunglyndi),

  • að við getum kennt börnum félagsfærni; þ.e. innlifun, aðferðir til að leysa úr vanda og hafa stjórn á  eigin hvötum

  • að mikilvægt er að gripið sé fljótt og hnitmiðað inn í málin ef áföll verða eða börn lenda í kreppu á annan hátt.


Kristján Már Magnússon
sálfræðingur

Birtist í Mbl. 31. ágúst 2002

Uppfært 5. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli