Einelti er ofbeldi
Á undanförnum árum hefur umræða um einelti í skólum farið mjög vaxandi hér á landi. Skólafólk eru farið að gera sér betur grein fyrir langvarandi áhrifum eineltis á þolendur og er tilbúnara en áður til að viðurkenna vandann og takast á við hann.
Árið 1998 gerði Rannsóknarstofnun uppeldis- og menntamála rannsókn á umfangi og eðli eineltis í íslenskum grunnskólum. Niðurstöður rannsóknarinnar voru birtar 1999. Stofnunin gerði síðan framhaldsrannsókn um úrræði skóla. Niðurstöður lágu fyrir í september 2000. Fram kom meðal annars óöryggi og kvíði meðal kennara gagnvart einelti og að þeir fundu sig vanbúna til þess að takast á við einelti.
Í kjölfar þessara rannsókna var settur niður starfshópur á vegum Samráðsnefndar grunnskóla. Starfshópnum var falið að koma með tillögur um hvernig bregðast skuli við þegar einelti kemur upp í grunnskólum. Starfshópurinn skilaði tillögum sínum í maí 2001 og lagði til að teknar yrðu upp hugmyndir og framkvæmdaáætlun sem kenndar eru við Svíann Dan Olweus og hafa skilað miklum árangri í baráttu við einelti.
Samkomulag var gert vorið 2002 við Olweus og háskólann í Bergen um notkun á hugmyndum hans í baráttu við einelti hér á landi. Í kjölfarið var samið við 19 skóla um allt land um að þeir tækju að sér að vera móðurskólar í eineltisátaki hér á landi. Hugmyndin er að hver þeirra verði ráðgefandi fyrir tvo til þrjá skóla. Í júní var haldið námskeið fyrir fulltrúa þessara skóla. Átakið hefst síðan um næstu áramót og stendur í 18 mánuði. Hér fyrir neðan eru sett fram lykilatriði sem snúa að einelti og fyrirbyggjandi starfi í skólum.
- Einelti felur í sér að nemandi er tekin fyrir af einum eða fleiri nemendum með síendurtekinni stríðni, látbragði, niðrandi ummælum, sögusögnum, andlegri kúgun, hótunum af ýmsu tagi sem kemur þolanda illa, líkamlegri höfnun eða markvissri einangrun eða útskúfun.
- Ef barn er lagt í einelti líður ekki langur tími áður en því fer að líða illa, verður hrætt, öryggislaust, einmana og tortryggið gagnvart félögum. Sjálfstraustið hverfur, það einangrar sig og verður jafnvel veikt án sýnilegra sjúkdóma. Langvarandi einelti veldur streitu sem leitt getur til alvarlegra vandamála eins mjög neikvæðrar hegðunar, lystarleysis og þunglyndis.
- Einelti er tengt skólabrag einstakra skóla og því hegðunar- og samskiptamynstri sem viðgengst í skólanum.
- Stefnumótun í eineltismálum hefur það að markmiði að tryggja skólaumhverfi þar sem nemendum líður vel og þeir búa við öryggi.
- Góður bekkjarandi er lykilatriði við að byggja upp jákvæðan skólabrag.
- Nemendum líður vel þar sem gagnkvæm virðing ríkir og hver og einn fær að vera á eigin forsendum.
- Nemendum líður vel þar sem samskipti nemenda helgast af virðingu fyrir skólafélögum, samábyrgð, umhyggju og ábyrgri hegðun.
- Einelti er ofbeldi sem getur haft varanleg áhrif á sálarlíf fórnarlambsins.
- Skólar verða að viðurkenna að einelti á sér stað í skólum óháð stærð og staðsetningu.
Leiða má að því líkum að allt að 5000 nemendur verði fyrir eða taki þátt í einelti í grunnskólum landsins.
Arthur Morthens
forstöðumaður þjónustsviðs
Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkurborgar
Birtist í Mbl. 7. sept. 2002
Uppfært 5. nóvember 2008