Heilsa í leikskóla
Markmið heilsuleikskólans Urðarhóls eru að auka gleði og vellíðan barnanna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik.
Næring
Hollt fæði er grunnur að almennri heilsu, vellíðan, þroska og frammistöðu alla ævi. Í æsku er mataræðið sérstaklega mikilvægt vegna þess að á þessu tímaskeiði fer fram mesti vöxtur og þroski ævinnar. Gæta þarf þess að börn neyti fjölbreyttrar fæðu, nægilegs vökva og að máltíðin sé ánægjuleg og þroskandi í senn.
Hreyfing
Markviss hreyfing eflir aðhliða þroska barnsins. Barnið öðlast betri líkamsvitund og góð líkamleg færni leiðir af sér ánægðara barn. Sjálfsöruggt og glatt barn á auðveldara með að hreyfa sig og tileinka sér þekkingu. Markviss hreyfiþjálfun hefur einnig áhrif á málþroska og málskilning barna og eykur þannig félagsfærni, leikgleði og eflir vináttubönd.
Listsköpun
Barn hefur mikla þörf fyrir að skapa og er að því allar stundir í leik sínum. Það að vinna út frá eigin forsendum og með þann efnivið sem það kýs hverju sinni gefur barni tækifæri til að þroska hæfileika sína. Skapandi starf eflir gagnrýna hugsun, þjálfar rökhugsun og eflir skynjun barns og næmi fyrir umhverfinu.
Mikilvægt er að foreldrar vinni með starfsfólki leikskólanna að því að skapa styrkan grunn að góðu og heilbrigðu lífi. Munum þó að það eru foreldrarnir sem bera ábyrgð á uppeldi barna sinni og höfum markmið heilsuleikskólans að leiðarljósi.
Aukum gleði og vellíðan barna okkar með því að taka þátt í leik og listsköpun þeirra, gefum þeim hollan mat og hreyfum okkur með þeim.
Unnur Stefánsdóttir
leikskólastjóri Heilsuleikskólans Urðarhóls
Anna Björg Aradóttir
hjúkrunarfræðingur Landlæknisembættinu
Birtist í Mbl. 8. mars 2003
Uppfært 5. nóvember 2008