Heilbrigt umhverfi -- heilbrigð börn

Alþjóðaheilbrigðisdagurinn, 7. apríl, er að þessu sinni helgaður því markmiði að bæta umhverfi barna svo þau megi vaxa úr grasi hraust og heilbrigð og laus við heilsufarsógnir frá umhverfi sínu. Þannig mótum við framtíðina í þágu barnanna.

Kringumstæður barna um víða veröld eru afar ólíkar. Í fátækari heimshlutum stafar heilsu barna hætta m.a. af óhreinu drykkjarvatni, ófullnægjandi hreinlæti og smitsjúkdómum meðan börn hinna ríkari þjóða búa flest við góða heilbrigðisþjónustu þar sem ungbarnadauði heyrir til undantekninga og börn eru bólusett gegn algengustu barnasjúkdómum. Hér er því ólíku saman að jafna. Til þeirra þjóða teljumst við Íslendingar.

En hvert er þá umhverfi barna á Íslandi? Er allt í stakasta lagi á heimilum þeirra, í skólanum og í næsta umhverfi þeirra? Þótt Ísland skipi sér í fremstu röð þjóða varðandi umhverfi og aðbúnað barna eru atriði sem við þurfum að taka okkur á um að bæta. Lífsstíll barna og fullorðinna markar þar e.t.v. dýpstu sporin. Álag, langur vinnudagur, jafnt barna og fullorðinna, hreyfingarleysi, lítill svefn og matarræði eru þættir sem geta haft veruleg áhrif á heilsu barna.

Þá bíður fjöldi barna tjón á andlegri,  ef ekki líkamlegri heilsu sinni, vegna félagslegra aðstæðna, vegna skilnaða, vegna ofbeldis á heimilum eða vegna eineltis í skólum, svo dæmi séu tekin.

Önnur ógn frá umhverfinu við heilbrigði íslenskra barna eru slysin. Á hverju ári hlýtur fjöldi barna alvarleg og stundum varanleg meiðsl í slysum og týna jafnvel lífi.  Það er þekkt staðreynd að íslensk börn verða oftar fyrir slysum í umferðinni og á heimilum sínum en börn í nágrannalöndum okkar.

Jónína M. Guðnadóttir
upplýsinga- og útgáfustjóri 
Vilborg Ingólfsdóttir
yfirhjúkrunarfræðingur
Landlæknisembættinu

Birtist í Mbl. 5. apríl 2003

Uppfært 5. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli