Slys á börnum
Alþjóðaheilbrigðisdagurinn var 7. apríl síðastliðinn og var hann helgaður heilbrigði barna með það að markmiði að tryggja þeim heilbrigt umhverfi, en á hverju ári látast um fimm milljónir barna 0-14 ára, aðallega í þriðja heiminum.
Hér á landi eru lífslíkur frá getnaði til fæðingar með því sem best gerist í heiminum. En þegar í heiminn er komið eru slys á börnum hérlendis algeng og mun algengari ef miðað er við hinar Norðurlandaþjóðinar. Talið er að um 20.000 börn og unglingar slasist árlega hér á landi og eru heima- og frítímaslys langstærsti slysaflokkurinn. Á eftir koma skólaslysin í yngri aldurshópunum og íþróttaslysin fara síðan að síga fram úr þeim fjölda upp úr 10 ára aldri og umferðarslysum fer síðan hratt fjölgandi frá 15 ára aldri
Mjög margt er hægt að gera til að fyrirbyggja þessi slys, en svo virðist sem foreldrar komist langt á þeirri hugsun að ekkert komi fyrir hjá þeim og einhvern veginn virðast íslenskir foreldrar treysta börnum sínum mun betur til að passa sig sjálf en foreldrar í nágrannaþjóðum.
Hvað er til ráða?
Í tengslum við heimilið, þar sem slysin eru flest, þarf að horfa gagnrýnum augum á umhverfið og gera það „barnvænna" þannig að börnin geti leikið sér án þess að það hafi slysahættu í för með sér. Þeim þarf að setja skýrar línur um hvað er leyfilegt og hvað ekki og standa alltaf við þær. Margar öryggisvörur eru til sem hægt er að nota til að fyrirbyggja slysin, eins og hlið á stigaop, hlífar á borðhorn, festingar fyrir bönd á rimlagardínum, hlífar á eldavélar, takka þeirra og ofna og svo mætti lengi telja.
Varðandi skóla- og íþróttaslys geta foreldrar unnið að slysaforvörnum með því að gera athugasemdir við það sem þeim finnst vera ábótavant í umhverfi barnanna, t.d. við leiktæki, íþróttaaðstöðu eins og laus mörk o.fl. Í umferðinni þurfa foreldrar að vera til fyrirmyndar og gæta þess að börnin noti réttan öryggisbúnað, sama hvort um er að ræða hjól, línuskauta, hjólabretti, hlaupahjól eða bíl.
Munum gamla góða málsháttinn sem stendur alltaf fyrir sínu: „Byrgjum brunninn áður en barnið dettur í hann."
Sigrún A. Þorsteinsdóttir
Slysavarnafélagið Landsbjörg
Birtist í Mbl. 12. apríl 2003
Uppfært 5. nóvember 2008