Brjóstagjöf
Lengi býr að fyrstu gerð
Lengi býr að fyrstu gerð og því er mikilvægt að hugað sé vel að öllu því sem stuðlar að því að börn dafni vel og þroskist eðlilega. Næringin skipti miklu máli og með því að stuðla að góðum fæðuvenjum strax á fyrsta ári má leiða að því líkum að grunnur sé lagður að heilsamlegum matarvenjum síðar meir. Sífellt fleiri rannsóknir sýna fram á hversu holl móðurmjólkin er, ekki bara fyrir barnið heldur móðurina, fjölskylduna og samfélagið. Brjóstagjöfin hefur jákvæð áhrif á heilbrigði, næringu, ónæmiskerfi, þroska, sálræna líðan, félagslega velferð, fjárhag og umhverfi. Ef barnið dafnar vel og er vært er móðurmjólkin næg næring fyrstu fjóra til sex mánuðina.
Látið barnið ráða ferðinni
Langflestar konur geta haft barn sitt á brjósti, en viðhorf þeirra til brjóstagjafar skiptir máli, þ.e. að hafa vilja til að láta brjóstagjöfina ganga vel. Konan þarf líka næði, góða næringu, nægileg hvíld og stuðning frá fjölskyldu og fagfólki. Til að móður og barni líði sem best við gjöfina er mikilvægt að koma sér vel fyrir og að barnið nái góðu og réttu takin á geirvörtunni. Rétt stelling og rétt sog barnsins dregur auk þess úr hættu á sárum geirvörtum. Til að foraðst stíflur í brjóstum á að láta sér ekki verða kalt, gæta þess að föt þrengi ekki að brjóstunum, halda ekki raka að geirvörtum og að láta barnið drekka vel í hverri gjöf. Barnið ætti að ráða ferðinni fyrstu mánuðina og því oftar sem barnið sýgur brjóstið því meiri mjólk myndast.
Mikilvægt er að fá sem fyrst úrlausn ef vandamál skjóta upp kollinum einkum fyrstu vikurnar. Hægt er að leita ráða hjá starfsfólki ungbarnaverndar á heilsugæslustöð og kvennadeildum sjúkrahúsa. Einnig eru starfandi hér á landi brjóstagjafaráðgjafar sem fyrrtaldar stofnanir geta veitt upplýsingar um.
Ef barn er ekki á brjósti af einhverjum ástæðum eða þarf aðra næringu fyrstu mánuðina á að gefa því þurrmjólkurblöndur ætlaðar ungbörnum. Þá þarf að huga að því að blanda samkvæmt leiðbeiningum, að hitastigið sé rétt og að hreinlætis sé gætt.
Brjóstagjöf hefur marga kosti:
- Með móðurmjólkinni fær barnið góða vörn gegn sumum sýkingum.
- Brjóstamjólkin er alltaf fersk og við rétt hitastig.
- Móðurmjólk minnkar sennilega líkur á ofnæmi og astma.
- Móðurmjólkin er auðmelt og minnkar líkur á hægðatregðu.
- Næturgjöfin er auðveldari; það þarf ekki að fara fram úr um miðjar
nætur til að hita mjólk. - Brjóstagjöf fylgir enginn þvottur eða sótthreinsun pela.
- Brjóstamjólk kostar ekki peninga.
- Þegar byrjunarörðugleikar eru úr sögunni er brjóstagjöfin yfirleitt
notaleg samverustund fyrir móður og barn.
Við gerð þessa pistils var meðal annars stuðst við bæklinginn, Næring ungbarna sem gerður var af Manneldisráði, Lýðheilsustöð og Miðstöð heilsuverndar barna. Hann er hægt að nálgast hjá þessum stofnunum og heilsugæslustöðvum sem og á www.manneldi.is
Anna Björg Aradóttir
hjúkrunarfræðingur
Birtist í Mbl. 28. apríl 2004
Uppfært 5. nóvember 2008