Heilsa mæðra og barna - velferð þjóða

Ár hvert helgar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin  þann 7. apríl málefni sem skiptir verulegu máli fyrir lýðheilsu þjóða. Nú í ár er heilsa og velferð mæðra og barna sett í öndvegi. Stofnunin vill vekja athygli á því að á ári hverju deyr hálf milljón mæðra í kringum barnsburð og 11 milljónir barna á fyrstu fimm árum lífs síns 

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur sett fram fjögur megin skilaboð i tilefni dagsins:

  • Heilbrigðar mæður og börn eru sá þjóðararður sem skiptir sköpum.
  • Á alþjóðavísu deyja og þjást börn og mæður vegna sjúkdóma sem auðveldlega hefði mátt koma í veg fyrir.
  • Með því að nýta þekkingu sem við höfum yfir að ráða í dag má bjarga milljónum mannslífa.
  • Til róttækra breytinga þarf samstarf og framkvæmd í verki. Hvert og eitt okkar hefur hlutverki að gegna.
Hvað er það hér á landi sem hægt er að gera til vinna í anda þessa dags?

Í fyrsta lagi skal það tekið fram að faðirinn er auðvitað lykilaðili þó ónefndur sé í slagorðinu. Heilbrigðisþjónustan með heilsugæsluna í broddi fylkingar á að vera talsmaður þess að heilsa barna og mæðra sé höfð að leiðarljósi í þjónustu sem veitt er og jafnframt í stefnumörkun stjórnvalda. Félagsmálaþjónusta og menntakerfi eru lykilsamstarfsaðilar sem einnig hafa lagt sitt af mörkum.

Við sem búum í samfélaginu eigum að standa vörð um hagsmuni og gildi sem hlúa að fjölskyldunni þannig að hún geti sinnt börnum sínum af alúð, bæði hér á landi sem og annars staðar. Áfram þarf að feta þá braut sem hefur verið byggð upp á síðastliðnu árhundraði til að tryggja velferðarkerfi sem byggir á jöfnuði í þjóðfélaginu í formi heilsugæslu-, mennta- og félagskerfis.

Segja má  að við hér á Íslandi höfum að mörgu leyti staðið okkur vel í að tryggja heilsu mæðra og barna. Bólusetningar og slysavarnir hafa skilað verulegum árangri án þess að ástæða sé til að sofna á verðinum. Enn má þó bæta sig og má þar nefna sálfélagslega þætti eins og fátækt, mikla atvinnuþátttöku foreldra, einstæð foreldri, innflytjendur og foreldra sem eiga við langvinna sjúkdóma eða örorku að stríða. Einnig þarf að bregðast við ýmsum þjóðfélagslegum breytingum sem hafa áhrif á uppvaxtaskilyrði barna og tækifæri foreldra til að sinna uppeldisskyldum sínum.

Börn og mæður eiga að skipa öndvegi í sérhverju þjóðfélagi. Við getum öll lagt lóð á vogarskálarnar. Landlæknisembættið vill hvetja foreldra, stofnanir samfélagsins, fjölmiðla og aðra til að líta í eigin barm og huga að því hvort og hvernig þau stuðla að bættri velferð barna og mæðra.

Anna Björg Aradóttir hjúkrunarfræðingur
Landlæknisembættinu

Birtist í Mbl. 2. apríl 2005 

Uppfært 5. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli