Öryggi barna
Öryggi barna á leið í skólann
Strax í byrjun skólagöngu er mikilvægt er að huga að öryggi barnsins á leið í skólann. Athuga þarf á hvað hátt barnið ferðast í skólann. Búi barnið í næsta nágrenni skólans og þarf ekki að fara yfir hættulegar umferðargötur þá ætti barnið að ganga í skólann. Sé barninu ekið þarf að ýmsu huga, s.s. öryggi barnsins í bílnum og fleiru.
Endurskinsmerki
Því miður eru það afar fá börn og fullorðnir sem nota endurskinsmerki hér á og landi. Þau eru hins vegar lífsnauðsynleg slysavörn þar sem skammdegið hér er mikið.
Örugg gönguleið í skólann
Mjög mikilvægt er að yngstu börnunum sé fylgt í skólann fyrstu dagana eða alveg þangað til að barnið er öruggt að ganga sjálft og sýnir að það kann og veit hvernig það á að komast í skólann á öruggan hátt. Mikilvægt er að stysta og öruggasta leiðin sé valin.
Örugg aðkoma að skólum
Margir foreldrar vilja ekki láta barnið ganga í skólann af því að þeir eru hræddir um að ekið sé á barnið vegna þess hversu mikil umferð er við skólann. En þarna eru það í raun foreldrarnir sjálfir sem eru að orsaka þessa miklu umferð við skólann, þ.e. foreldrarnir sem eru að aka börnum í skólann. Síðasta vetur var undirrituð að fylgjast með umferð fyrir utan grunnskóla að morgni. Orð fá því varla lýst að hverju ég varð vitni. Þarna komu nánast allir akandi með börnin og á síðustu tíu mínútunum fyrir skólabyrjun. Þau fáu börn sem komu gangandi áttu fótum sínum fjör að launa þar sem þau stukku þvers og kruss yfir göturnar í kringum skólann. Sumir foreldrar nenntu ekki að aka inn að lóðinni þar sem aðkeyrsla er fyrir bíla svo hægt sé að hleypa börnunum út á öruggan hátt. Og margir þeirra sem þó notuðu innkeyrsluna gerðu það ekki rétt, þ.e. þeir stöðvuðu bílinn um leið og þeir komu inn í aðkeyrsluna - og komu þannig í veg fyrir að nokkrir aðrir kæmust þar inn - í stað þess að aka fremst svo rými væri fyrir fleiri bíla. Við þetta myndaðist bílaröð langt út á akbrautina fyrir framan skólann. Þeir sem þar voru urðu mjög stressaðir vegna tímaskorts og hleyptu börnunum út úr bílnum út á miðja götu en þar voru fyrir aðrir foreldrar að gefa í því þeir voru að verða of seinir í vinnuna. Og allt gerðist þetta í kolniðamyrkri. Þarna eru foreldrar búnir að skapa vítahring hættuástands við skólana og það eru þeir einir sem geta leyst hann upp.
Er barnið öruggt í bílnum?
Þennan sama morgun var líka ýmislegt að sjá sem athugavert var varðandi búnaðinn á börnunum í bílum.
Herdís L. Storgaard
Árvekni, Lýðheilsustöð
herdis@lydheilsustod.is
www.lydheilsustod.is
Birtist í Mbl. 5. september 2005
Uppfært 5. nóvember 2008