Skyndidauði ungbarna - forvarnir gera gagn
Nær allir foreldrar bera einhvern kvíða í brjósti yfir því að eitthvað komi fyrir barnið þeirra og oft er kvíðinn mestur fyrstu vikurnar og mánuðina. Sumir vakna á næturnar til að gæta að barninu og róa sjálfan sig. Eitt af því sem veldur áhyggjum er skyndidauði ungbarna, öðru nafni vöggudauði. Hann er skilgreindur þannig að ungbarn, oftast á aldrinum 2ja-4ra mánaða, deyr í svefni, án undanfarandi veikinda, og vönduð krufning með viðeigandi rannsóknum leiðir ekki í ljós dánarorsök. Sem betur fer hefur tíðni vöggudauða hér á landi hefur verið með því lægsta sem þekkist í nálægum löndum.
![]() |
Nýjar rannsóknir benda til þess að notkun snuðs á svefntíma dragi úr líkum á vöggudauða. Því er mælt með henni í nýjum leiðbeiningum sem landlæknir hefur sent frá sér um aðgerðir til varnar skyndidauða ungbarna. Síðast voru slíkar leiðbeiningar gefnar út árið 1994, en í ljósi nýrrar þekkingar hafa þær nú verið endurskoðaðar og sendar öllu heilbrigðisstarfsfólki sem annast ungbarnavernd.
Meginbreytingin frá leiðbeiningunum 1994 er sú að í ljósi ofannefndra rannsókna er nú mælt með notkun snuðs á svefntíma ungbarna, þó ekki fyrr en brjóstagjöf er komin vel á veg, enda er brjóstagjöfin einnig talin vera mikilvæg vörn gegn vöggudauða.
Aðrar breytingar eru að aukin áhersla er nú lögð á að ungbörn sofi á bakinu. Ef það reynist af einhverjum ástæðum erfitt er mælt með að því að gæta þess að börnin geti ekki oltið á grúfu. Að öðru leyti er foreldrum ráðlagt að ekki sé reykt á heimilum ungbarna eða þar sem þau dvelja, að ungbörn sofi jafnan í eigin rúmi og séu höfð á brjósti ef þess er nokkur kostur. Þá skal forðast að nota kodda undir höfuð ungbarna og að ofdúða þau
Landlæknisembættið vill koma eftirfarandi ábendingum til foreldra:
-
Leggið heilbrigð ungbörn til svefns þannig að þau liggi á baki. Ef hliðarlega er valin verður að gæta þess að þau geti ekki oltið yfir á grúfu þar sem þeirri legu hefur fylgt aukin áhætta á vöggudauða. Þegar um er að ræða fyrirbura eða ungbörn sem hafa verið veik eða hafa meðfæddan galla af einhverju tagi skal fylgja sérstökum fyrirmælum læknis.
-
Forðist tóbaksreykingar, sérstaklega á meðgöngutíma, á heimilum ungbarna og öðrum stöðum þar sem þau dveljast.
-
Látið ungbörn sofa í eigin rúmi í herbergi foreldra fyrstu mánuðina. Sérstaklega er varhugavert að börn deili rúmi með þeim sem:
- Reykja.
- Hafa notað áfengi eða önnur vímuefni.
- Nota lyf sem hafa þau áhrif að svefn er dýpri.
- Eru mjög þreyttir. -
Hafið barnið á brjósti sé þess kostur.
-
Notið ekki kodda undir höfuð ungbarna þegar þau eru lögð til svefns og forðist mjúkar dýnur og mjúk leikföng í rúmum þeirra. Gætið þess að gæludýr á heimilinu komist ekki í rúm barnanna.
-
Forðist ofdúðun ungbarna. Fylgist með því að þeim sé ekki of heitt, t.d. hvort þau svitna, og minnkið klæðnað og annan umbúnað ef svo er.
-
Mælt er með snuðnotkun á svefntíma þegar brjóstagjöf er komin vel á veg þar sem rannsóknir benda til að það dragi úr líkum á vöggudauða.
-
Látið fylgjast vel með heilbrigði ungbarna. Notfærið ykkur þá ungbarnavernd sem í boði er.
Það skal ítrekað að skyndidauði ungbarna er sjaldgæfur hér á landi og því ekki ástæða fyrir foreldra til að hafa miklar áhyggjur en vert er að hafa þessar ábendingar að leiðarljósi meðan börnin eru ung.
Anna Björg Aradóttir
yfirhjúkrunarfræðingur
Birtist í Mbl. 6. mars 2006
Uppfært 5. nóvember 2008
