Heilsueflandi skólar

Nú eru börnin okkar að hefja skólagöngu á ný eftir sumarfrí, hress og kát og tilbúin að takast á við verkefni komandi veturs. Meginmarkmið skólanna er að mennta börn á þann hátt að þau geti nýtt styrkleika sína til að vera skapandi í þjóðfélaginu.

 Krakkar að leik.

Rannsóknir hafa sýnt okkur að líðan og heilsa barna hefur áhrif á getu þeirra til að læra og þroskast og að sama skapi hefur skólasamfélagið áhrif á velferð barnanna. Það skiptir því miklu máli að skapa skólaumhverfi sem er heilsueflandi. Í þessu samhengi er vert að huga að því að þótt ábyrgðin hvíli á skólanum um að mennta börnin er ábyrgð foreldra ekki síðri hvað varðar uppeldið þannig að börnin séu móttækileg fyrir fræðslu. Einnig þurfa ráðamenn að tryggja að starfsfólks skólanna sé vel menntað, að umhverfið sé heilsueflandi og að foreldrum séu sköpuð tækifæri til að hafa áhrif.

Nú á dögum eru börnin okkar meira og minna í skóla frá um tveggja ára aldri til óræðs aldurs, en skyldan kveður á um tíu ár. Þannig gegnir leikskólinn æ viðameira hlutverki í menntun barna og á sama tíma hefur tími fyrir foreldri að ala upp börnin sín styst. Hér á landi hefur um nokkurra ára skeið verið til staðar verkefnið, Heilsuefling í skólum, sem miðar að því að efla heilsu og velferð barna með eftirfarandi leiðum:

  • Skapa heilsueflandi umhverfi til náms og vinnu, hvað varðar byggingar, leikvelli, matstofu og öryggisþætti.
  • Efla ábyrgð einstaklinga, fjölskyldu og samfélagsins á eigin heilsu.
  • Hvetja til heilbrigðra lífshátta með raunhæfum og aðlaðandi valkostum fyrir nemendur og starfslið.
  • Gera nemendum kleift að nýta líkamlega, andlega og félagslega getu sína og auka sjálfsvirðingu þeirra.
  • Setja skýr markmið heilsueflingar og öruggs umhverfis fyrir alla í skólanum nemendur og starfslið.
  • Ala á góðum samskiptum nemenda og kennara og bæta tengsl milli skóla, heimila og sveitarfélags.
  • Kanna styrkleika og úrræði samfélagsins til að styðja aðgerðir til bættrar heilsu.
  • Skipuleggja samfellda námsskrá í heilbrigðisfræðslu með virkri þátttöku nemenda.
  • Bæta þekkingu og hæfileika nemenda til að geta tekið ábyrga afstöðu um eigin heilsu og til að vernda og bæta umhverfi sitt.
  • Að kenna nemendum að horfa til heilbrigðisþjónustu út frá víðu sjónarhorni og nýta sér hana á sem hagkvæmastan hátt.

Þeir sem vinna að því að efla heilbrigði fólks telja að fátt sé jafn mikilvægt á heilbrigðissviði og forvarnir. „Betra er að byrgja brunnin áður en barnið er dottið ofan í" segir gamalt máltæki. Heilsan er okkur auðvitað öllum dýrmæt og saman berum við ábyrgð á því að rækta líkama og sál og stuðla þannig innihaldsríkara lífi.

Líklega blandast engum hugur um að börnin og unga fólkið okkar er það dýrmætasta sem við eigum. Það sama hefur verið sagt um heilsuna - eða eins og vitur maður sagði þá á heilbrigður maður margar óskir en sjúkur maður aðeins eina. Það er því mikilvægt að tryggja börnum allt, frá upphafi, aðstæður og atlæti sem gerir þeim kleift að nýta hæfileika sína og njóta góðs lífs.

Heilsuefling í skólum er verkefni sem hefur það að leiðarljósi að efla getu barna og ungmenna til að takast á við verkefnin sem bíða þeirra í lífinu og stuðla að jákvæðum breytingum í samfélaginu. Í heilsueflandi skóla er leitast við að skapa umhverfi þar sem nemendur, í samstarfi við kennara og aðra, öðlast trú á að ná árangri í lífinu. Stuðlað er að jákvæðu andrúmslofti sem elur á góðum samskiptum og gagnrýnni umræðu um gildi og hugsjónir.


Anna Björg Aradóttir
yfirhjúkrunarfræðingur

Birtist í Mbl. 6. september 2006 


 Uppfært 5. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli