Börn


 Börn í sundlaug

Hollráð um heilsuna beina sjónum að heilsu barna með ýmsu móti. Meðal efnis í þessum flokki er umfjöllun um heilsu skólabarna þar sem velt er upp spurningunni hvernig efla megi líkamlega og andlega líðan barna í skólum og bæta heilsufar skólabarna til langs tíma. 

Eitt það fyrsta sem blasir við í því efni er offita og ofþyngd barna á skólaaldri ásamt hreyfingarleysi, sem eru vaxandi vandamál og leita þarf lausna við sem duga áður en í meira óefni er komið.

Ekki er síður mikilvægt að huga að andlegri velferð barna og félagslegum áhrifaþáttum sem skipta sköpum fyrir heilsufar þeirra, s.s. hegðunarvandamál, ofvirkni og einelti í skólum.

Skólar, heilsugæsla og félagsþjónusta í ýmsum sveitarfélögum hafa með sér samstarff um að leita lausna með nýjum úrræðum til að hjálpa skólabörnum með alvarleg hegðunarvandamál. Menntamálaráðuneytið ásamt samtökum skólastjóra, kennara og foreldra og Samtökum íslenskra sveitarfélaga standa að umfangsmikilli aðgerðaáætlun til þess að draga úr einelti í skólum. Þá vinnur áhugafólk um baráttu gegn einelti barna að sömu markmiðum í samtökunum Regnbogabörn sem starfrækja ráðgjafarstöð.

Auk efnis um heilsu skólabarna er vakið máls á ýmsu sem varðar öll börn, allt frá ungbörnum til hinna eldri, velferð þeirra og heilbrigði til sálar og líkama.

Neðantöldum greinum er raðað í tímaröð eftir birtingardegi þeirra á síðum Morgunblaðsins:


Sjá einnig:
Slysavarnir barna:
Forðumst slysin
Klínískar leiðbeiningar: Offita barna og unglinga: meðferð og forvarnir 


Uppfært 5. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli