Konur og reykingar
Skaðsemi reykinga hjá konum og körlum er vel þekkt. Aukin tíðni lungnakrabbameins er þar ofarlega á blaði og reykingar eru algengasta ástæða langvinnra lungnateppusjúkdóma. Einnig er aukning á æðakölkun í slagæðum, m.a. í hjarta og heila, með meðfylgjandi hættu á hjarta- eða heilaáföllum.
Reykingar hafa sértæk áhrif á heilsu kvenna. Þannig er ungum konum sem reykja hættara við minnkaðri frjósemi og fósturlátum en þeim sem ekki reykja og börn kvenna sem reykja eru að meðaltali minni en börn þeirra sem ekki reykja. Auknar líkur eru á að tíðahvörf hefjist fyrr hjá konum sem reykja og sömuleiðis virðast þær fá meiri tíðahvarfaeinkenni en þær sem ekki reykja. Þá er töluvert aukin hætta á beinþynningu hjá konum sem reykja. Fimmföldun á aldursstaðlaðri dánartíðni lungnakrabbameins hjá konum á síðustu fjórum áratugum og tvöföldun hjá körlum sýnir að reykingar hafa tekið sinn toll hér á landi Það virðist sem hámarki sé nú náð þó tíðni sé enn mikil hjá báðum kynjum.
Ef ég væri reyklaus
Ef reyklausi dagurinn nýtist til að konur sem reykja hugleiði reykingar sínar þá er það vel. Þættir sem þar skipta máli eru til dæmis:
- Hefur hún hugleitt að hætta að reykja?
- Er þetta heppilegur tími til þess?
- Ef svo er ekki, mun sá tími koma og þá hvenær?
- Konur sem hafa hætt að reykja en byrjað aftur hafa gagn af því að velta fyrir sér hvaða aðferð þær beittu síðast til að hætta svo að meiri líkur séu á að næsta tilraun beri árangur.
Margar eldri konur sem reykja vissu ekki af skaðsemi reykinga þegar þær byrjuðu að reykja. Síðar kom í ljós að skaðsemi reykinga fyrir konur var enn meiri en fyrir karla. Í dag er þekkingin til staðar, meðferðarmöguleikum fjölgar og vonandi hvetur það æ fleiri til að takast á við tóbaksfíknina og hefja reyklaust líf á ný.
Lilja Sigrún Jónsdóttir læknir
Birtist í Mbl. 1. júní 2004
Áhugaverðir tenglar:
www.krabbameinsskra.is
http://www.reyklaus.is/
www.lydheilsustod.is/lydheilsustod/tobaksvarnir/
Uppfært 5. nóvember 2008