Þú átt rétt á hreinu lofti
Hér á landi eins og víða í nágrannalöndum hefur árangur í tóbaksvörnum verið mjög góður þó enn megi gera betur. Nú reykir um fimmtungur landsmanna en fyrir tæplega tuttugu árum reyktu um 40% daglega. Reykingar meðal ungmenna hafa einnig dregist verulega saman. Stærsti hluti landsmanna hefur kosið að lifa reyklausu lífi og á rétt á hreinu lofti hvort sem er við vinnu eða í frístundum.
Sífellt fleiri rannsóknir sýna fram á skaðsemi óbeinna reykinga og virðist sem meiri líkur séu á að fólk þurfi að þola tóbaksreyk á vinnnustöðum en á heimilum. Líklegt er að fólk láti sér það annt um börn sín og aðra fjölskyldumeðlimi að þeim sé ekki boðið upp á reykmengað andrúmsloft.
Þetta virðist síður eiga við á vinnustöðum og þá einkum veitinga- og skemmtistöðum þar sem starfsfólk er iðulega í reykmettuðu lofti tímunum saman. Landlæknisembættið hvetur fólk til að virða rétt fólks til reykleysis og láta sér það annt um náungann að bjóða honum ekki upp á að anda að sér tóbaksreyk af annarra völdum. Nýleg könnun IMG Gallup fyrir Lýðheilsustöð leiddi í ljós að þrír af hverjum fjórum eru andvígir reykingum á kaffihúsum og veitingastöðum þannig að andrúmsloftið er jákvætt hvað varðar hreint loft á þeim stöðum.
Skilaboð Landlæknisembættisins eru:
Virðum rétt fólks til reykleysis
Fyrir þá sem íhuga að hætta að reykja eru ýmis ráð sem gott er að hafa í huga. Viljinn þarf að vera til staðar. Stuðningur fjölskyldu og vina er mikilvægur. Til eru ýmsar leiðir til að hætta, sumir nota hjálparmeðöl, aðrir ráðgjöf fagfólks og enn aðrir fara þetta á viljastyrknum einum saman. Hafa þarf í huga að stundum þarf nokkrar atrennur til að ná árangri.
Ráðgjöf og stuðning er hægt að fá á heilsugæslustöðvum og hjá Ráðgjöf í reykbindindi, grænt númer 800 6030. Einnig eru upplýsingar um ráð til að hætta að reykja og námskeið í boði á vefsetrum Krabbameinsfélagsins og Lýðheilsustöðvar.
Gangi ykkur vel!
Anna Björg Aradótttir
hjúkrunarfræðingur
Birtist í Mbl. 5. júní 2004
Uppfært 5. nóvember 2008