Viltu hætta að reykja?

Flestir reykingarmenn vilja hætta að reykja en oft er það hægara sagt en gert.
Margir verða strax áhyggjufullir við tilhugsunina, hræddir um að sér mistakist og hræddir við fráhvarfseinkennin. Oft eiga þeir nokkrar misheppnaðar tilraunir að baki; hafa hætt í nokkrar klukkustundir, jafnvel nokkra daga og síðan talið sér trú um að þeir geti alls ekki hætt að reykja. Þetta er mjög algengt enda tekst almennt aðeins um 10% reykingamanna að hætta án aðstoðar.

Árangurinn verður aftur á móti mun betri fái reykingamenn faglega hjálp við að hætta. Bestur verður árangurinn ef fólk hættir þegar það sjálft er tilbúið, en ekki þegar einhver annar þvingar það til þess, þekkir vel eigin reykingarvenjur og veit hvers vegna það vill hætta, gerir sér grein fyrir því hvernig því muni líða þegar það hættir og hefur fundið úrræði sem koma í stað reykingavanans.

Fagleg hjálp bætir árangur
Ýmis fagleg hjálp er boði, bæði í formi ráðgjafar og námskeiða auk aðstoðar sem býðst á heilsugæslustöðvum og heilsustofnunum. Á Heilsustofnuninni í Hveragerði er t.d. boðið upp á viku innlögn og 12 mánaða eftirfylgni. Ráðgjöf í reykbindindi er símaþjónusta á landsvísu þar sem þeir sem vilja hætta að reykja, eða eru nýhættir, fá hvatningu, ráðgjöf og stuðning. Opið frá klukkan 17-19 alla virka daga og síminn er 800 6030.

Nikotínlyf hjálpa mörgum. Læknir og/eða lyfjafræðingur metur þörf hvers og eins fyrir lyfin en það sýnir sig að almennt er árangur tvöfalt betri en ella þegar nikótínlyf eru notuð og minni líkur eru á fráhvarfseinkennum. Nikótínlaus lyfjameðferð býðst einnig en eingöngu læknar geta vísað á þannig lyf. Upplýsingar um fleiri aðila sem bjóða faglega aðstoð eru á heimasíðu Lýðheilsustöðvar: Fræðsla-námskeið.

Ávinningurinn af því að hætta að reykja
Áhrifin á heilsuna af því að hætta að reykja láta ekki á sér standa: Eftir 20 mínútur lækkar blóðþrýstingur og púls og blóðrás batnar. Eftir 8 tíma hefur kolsýrlingur (CO) í blóði minnkað um helming og eftir 48 tíma er hann horfinn. Þá er lyktar- og bragðskyn einnig komið í eðlilegt horf, hósti og andþyngsli að hverfa og auðveldara fyrir lungun að kljást við sýkingar. Eftir eitt ár hafa líkurnar á að fá hjartasjúkdóma minnkað um helming og eftir 5 ár er hættan á að fá hjarta- og æðasjúkdóma álíka mikil og hjá þeim sem aldrei hafa reykt. Eftir 15 ár er hættan á að fá lungnakrabbamein orðin álíka mikil og hjá þeim sem aldrei hafa reykt. Félagslegur ávinningar eru líka mikill, m.a. vegna þess að í flestum nútíma samfélögum er orðið erfitt fyrir fólk að reykja.

Fagfólk eflir samstarfið
Þess er væntanlega ekki langt að bíða að bannað verði að reykja á veitinga- og skemmtistöðum á Íslandi en áhrif þess banns er einmitt eitt af umfjöllunarefnunum á ráðstefnunni LOFT sem haldin er á Hótel Örk í Hveragerði 16. -17. september nk. Því þó að ýmis fagleg aðstoð standi reykingamönnum til boða þá telja þeir sem vinna við tóbaksvarnir að þar megi auka samstarfið til muna og efla heilbrigðisstarfsmenn í forvörnum og reykleysismeðferð. LOFT- ráðstefnur er m.a. sá vettvangur.

Meiri upplýsingar um LOFT eru á: www.hnlfi.is/loft2004


Bee McEvoy, verkefnisstjóri
Halla Grétarsdóttir hjúkrunarfræðingur

Birtist í Mbl. 11. september 2004 

Uppfært 5. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli