Hollráð um heilsuna
Undir yfirskriftinni Hollráð um heilsuna er að finna fræðslugreinar fyrir almenning um margsvísleg efni sem varða heilsufar og heilbrigðisþjónustu, forvarnir og heilsueflingu. Auk almennrar fræðslu um þessi efni er áhersla lögð á það sem fólk á öllum aldri getur gert sjálft til að bæta andlega og líkamlega heilsu sína með því að huga að daglegum lífsvenjum og viðhorfum.
Fræðslunni er miðlað í stuttum greinum sem birst hafa vikulega í Morgunblaðinu mörg undanfarin ár. Fræðsluátak þetta hóf göngu sína 26. febrúar 2002, fyrst undir heitinu Heilsan í brennidepli og síðar Frá Landlæknisembættinu. Verkefnið var framhald fræðslustarfs um heilsueflingu sem unnið var á þemamánuðum Landlæknisembættisins árið 2000 og birtist fræðsluefnið þá undir heitinu Hollráð.
Landlæknisembættið hafði samstarf við Lýðheilsustöð um greinaskrifin og skiptust stofnanirnar á að sjá um greinaskrifin, sína vikuna hvor, frá því í september 2004 þar til í ársbyrjun 2007 þegar fleiri stofnanir komu að greinaskrifunum. Vorið 2007 ákvað Landlæknisembættið að gera hlé á þessu starfi um sinn.
Greinarnar sem safnast hafa á umliðnum árum skipta orðið hundruðum og er þeim skipað í efnisflokka sem hægt er að nálgast á listanum hér til hægri.
Uppfært 5. nóvember 2008