Heilbrigt líf og heilsuvernd
Lýðheilsa grundvallast á sameiginlegri ábyrgð á heilbrigði þar sem ríkisvaldið gegnir veigamesta hlutverkinu í að verja og efla lýðheilsu. Meðal annars með því að marka stefnu í heilbrigðismálum, tryggja aðgengi að heilbrigðisþjónustu og gæði íslenska heilbrigðiskerfisins.
Lýðheilsa krefst samstarfs margra fræðigreina, s.s. heilbrigðisgreina, félagsfræði, líffræði, faraldsfræði, sálfræði, kynjafræði og stjórnmálafræði. Hún byggir á vísindalegum grunni og notkun fjölþættra aðferða við rannsóknir. Nauðsynlegt er að vera vakandi fyrir áhrifaþáttum heilbrigðis og sjúkdóma með heilbrigðisgát og faraldsfræðirannsóknum.
Með lögum Nr. 18/2003 var Lýðheilsustöð falið að sinna ákveðnum þáttum lýðheilsu sem áður voru í höndum Landlæknisembættisins, einkum fyrsta stigs forvörnum og heilsueflingu. Eftir sem áður ber Landlæknisembættið ábyrgð á framkvæmd annarra þátta lýðheilsu, þar á meðal sóttvörnum, heilbrigðistölfræði og eftirliti með gæðum heilbrigðisþjónustunnar. Einnig sinnir Landlæknisembættið stefnumótun og ráðgjöf til stjórnvalda og heilbrigðisstofnana um lýðheilsumál og kemur leiðbeiningum til heilbrigðisstarfsmanna.
Heilsugæsla og heilsuvernd miða að því að verja heilsu manna fyrir tiltekinni heilsuvá eða stuðla að heilbrigði einstaklinga, fjölskyldna og hópa. Heilsugæsla telst til frumþjónustu heilbrigðisþjónustunnar og er fyrsti viðkomustaður fólks í heilbrigðiskerfinu. Hún byggir á vísindalegum og viðurkenndum aðferðum og veitir fjölbreytta þjónustu eins og almenna læknisþjónustu, hjúkrun, heilsuvernd, forvarnir og heilsueflingu.
Helstu greinar heilsverndar sem sinnt er á heilsugæslustöðvum eru mæðravernd, ung- og smábarnavernd, skólaheilsugæsla, heilsuvernd aldraðra, ónæmisvarnir, ráðgjöf um kynheilbrigði, geðvernd, áfengis-, tóbaks- og fíkniefnavarnir, slysavarnir, skipulögð sjúkdómaleit og almenn heilbrigðisfræðsla.
Heilsugæslan veitir einstaklingum og fjölskyldum samfellda þjónustu, byggir á samvinnu heilbrigðisstétta og samhæfir ólíka þætti heilbrigðisþjónustu og tengdrar þjónustu. Hún telst til nærþjónustu í samfélaginu þar sem hún starfar og þarf að taka mið af aðstæðum og þörfum þess. Heilsugæslan á að vera ódýr og aðgengileg.
Forvarnir sjúkdóma miða að því að koma í veg fyrir sjúkdóma eða heilsufarsvanda og draga úr fylgikvillum þeirra. Forvörnum er því sinnt á öllum sviðum heilbrigðisþjónustunnar. Forvörnum sjúkdóma er oft skipt í 3 stig:
-
Stig - til að koma í veg fyrir heilsufarsvanda með því að hafa áhrif á áhættuþætti í umhverfi eða hjá einstaklingnum sjálfum.
-
Stig - til að stöðva/draga úr sjúkdómseinkennum með því að greina forstig þeirra, t.d. með skimunum.
-
Stig – til að draga úr afleiðingum sjúkdóma með viðeigandi meðferð og endurhæfingu.
Uppfært 17. febrúar 2009