Þroskaþjálfar
Þroskaþjálfar eru sérmenntaðir til að sinna fötluðum. Þroskaþjálfar starfa þar sem þroskaþjálfunar er þörf m.a. á:
- Heimilum
- Vinnustöðum
- Greiningar- og rágjafarstöð ríkisins
- Hæfingarstöðvum /dagvist
- Sjúkrastofnunum
- Skólum o Leikskólum
- Leikfangasöfnum
- Svæðiskrifstofum um málefni fatlaðra
- Félagsþjónustu sveitarfélaga
Starfið felst í uppeldi, umönnun og þjálfun. Með þroskaþjálfun er á fræðilegan og skipulegan hátt stefnt að því að koma fötluðum til aukins alhliða þroska. Gengið er út frá því að allar manneskjur geti nýtt sér reynslu sína, lært og þroskast. Í starfi sínu taka þroskaþjálfar annars vegar mið af þörfum hvers og eins og hins vegar þeim kröfum sem samfélagið gerir til þegna sinna. Ennfremur er lögð áhersla á skyldur samfélagsins við hina fötluðu og að samfélagið mæti þörfum þeirra. Þroskaþjálfun felur m.a. í sér að gerðar eru markvissar þjálfunaráætlanir sem miða að því að auka hæfni einstaklinga til að takast á við athafnir daglegs lífs (ADL).
Lög um þroskaþjálfa
Siðareglur þroskaþjálfa
Uppfært 4. nóvember 2008