Tanntæknar

Helstu verkefni tanntækna eru að:

  • aðstoða tannlækna við aðgerðir, svara í síma og sjá um sjúkraskýrslur og birgðahald á tannlæknastofum
  • taka til sjúklingaspjaldskrá hvers dags og undirbúa tannlæknastofu að morgni, ganga frá stofu að loknum vinnudegi, þ.e. hreinsa tannlæknastól, skol, borð og skápa
  • taka við tímapöntunum
  • taka á móti sjúklingum og búa þá undir meðferð
  • taka til áhöld sem nota þarf við aðgerðir, blanda fyllingar, efni í afsteypur o.þ.h., undirbúa og taka röntgenmyndir og framkalla filmur
  • veita tannlæknum aðstoð meðan á aðgerð stendur
  • sótthreinsa áhöld og búnað eftir hverja notkun
  • aðstoða við að taka mát og afsteypur og smíða tannlíkön
  • binda inn boga, festa tyllur á tennur og forma beisli hjá tannréttingasérfræðingum
  • sjá um daglegt viðhald á tækjum, s.s. smurningu, kaupa inn áhöld og efni t.d. í fyllingar, afsteypur og til sótthreinsunar
  • halda skýrslu um þá meðferð sem hver sjúklingur fær, taka við greiðslum frá sjúklingum, færa endurgreiðslureikninga og sjá í sumum tilvikum um bókhald tannlæknastofum
  • starfa ýmist á almennum tannlæknastofum eða hjá tannlæknum sem sérhæfa sig t.d. í barnatannlækningum, kjálkaskurðlækningum, tannréttingum eða tannholdslækningum.
  • Um tanntækna gildir reglugerð nr. 259/1998. Með þeirri reglugerð var felld niður reglugerð um réttindi og skyldur aðstoðarmanna tannlækna nr. 258/1990.

    Félag tanntækna og aðstoðarfólks tannlækna


Uppfært 4. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli