Tannlæknar
Tannlæknar greina meðfædda galla og áunna sjúkdóma í munni, kjálkum og kjálkalið og vinna gegn og meðhöndla þessa sjúkdóma:
- greina sjúkdóma með viðtölum við sjúkling og almennri skoðun
- styðjast oft við röntgenmyndir af tönnum og kjálkum við greininguna og við afsteypur af tönnum, vefja- eða sýklasýni
- gera meðferðaráætlun
- stuðla að tannvernd, s.s. með kennslu í réttu mataræði og tannhirðu, tannhreinsun og flúormeðferð
- meðhöndla tannskemmdir með fyllingum úr silfri, gulli, plasti, postulíni eða sementi
- meðhöndla tannvegssjúkdóma með tannsteinshreinsun, skurðaðgerðum og lyfjum
- rótfylla tennur eða draga þær úr sé þess þörf
- meðhöndla sýkingar og meðfædda galla í munni og kjálkum með skurðaðgerðum og lyfjum
- bæta tanntap og endurhæfa tyggingarfærin með ísetningu tanngerva, t.d. gull- og postulínskróna, brúa og gervigóma
- endurhæfa einnig tyggingarfærin með æfingum og bitspelkum hafi starfsgeta þeirra minnkað
- meðhöndla tann- og bitskekkju með tannréttingartækjum
- bera ábyrgð á rekstri tannlæknastofa, ráða og þjálfa tannfræðinga
- geta stundað rannsóknir og kennslu í háskóla og stjórnað tannvernd og þjónustu í skólum eða á vegum ríkis og sveitarfélaga
- geta sérhæft sig t.d. í barnatannlækningum, bitlækningum, munn- og kjálkaskurðlækningum, sýkla- og ónæmisfræði, tannfyllingar- og tannsjúkdómalækningum, tannvegslækningum, tannholdslækningum, tann- og munngervalækningum og tannréttingum.
Reglugerð um sérfræðileyfi tannlækna
Tannlæknafélag Íslands
Uppfært 14. nóvember 2008
Starfsleyfi
Starfsleyfi