Tannfræðingar
Tannfræðingar starfa á tannlæknastofum, heilbrigðisstofnunum, og í samvinnu við aðrar stéttir, m.a. fræðsluyfirvöld og skólastjórnendur. Tannfræðingar skipuleggja og framkvæma fyrirbyggjandi meðferð skjólstæðinga sinna. Störf tannfræðinga eru m.a:
- aðlögun að meðferð sjúklings á tannlæknastofu
- skoðun og gerð sjúkraskýrslu
- að tilvísa á sérfræðinga til frekari meðferðar ef þörf er á
- röntgenmyndataka
- máttaka af tönnum
- staðdeyfing í munnholi
- tannhreinsun og pússun fyllinga
- flúormeðferð og skorufyllingar
- að fræða um orsakir og afleiðingar tannholds- og tannvegssjúkdóma
- að leiðbeina í burstun og hreinsun tanna og vali á tannhreinsivörum
- að leiðbeina um fæðuval
- að setja upp og fjarlægja tannréttingatæki
Um tannfræðinga gildir reglugerð nr. 638/1987
Uppfært 4. nóvember 2008
Starfsleyfi
Starfsleyfi