Sjúkranuddarar
Sjúkranudd er löggild heilbrigðisstarfsgrein sem kennd er á háskólastigi. Námið tekur 2 til 3 ár og er viðurkennt af Landlæknisembættinu. Eingöngu er hægt að stunda námið erlendis, þ.e. í Kanada, Þýskalandi og Finnlandi. Það nuddnám sem fer fram á Íslandi sem stendur eða í öðrum löndum en þeim þremur sem nefnd hafa verið er því ekki viðurkennt sem sjúkranuddnám.
Nám í sjúkranuddi byggist á bóklegri kennslu þ.e. líffærafræði, lífeðlisfræði, sjúkdómafræði, taugalífeðlisfræði og hreyfingarfræði. Verklegi þátturinn byggist á kennslu í skoðun og mati á líkamlegu ástandi sjúklings, viðeigandi nuddaðferðum og æfingum.
Meðferðin er byggð á meinafræði og niðurstöðum skoðana sem hentar hverju tilfelli fyrir sig. Einnig er lögð áhersla á notkun vatns og hita. Endurhæfingaræfingar eru kenndar til þjálfunar, t.d. eftir áverka eða við líkamsskekkju.
Sérhæfing sjúkranuddara er á ýmsum sviðum, s.s. í bjúgmeðferð, íþróttameiðslum, ungbarna-, meðgöngu- og fæðingarnuddi og sjúkranuddi í vatni, svo eitthvað sé nefnt.
Svonefnt sænskt nudd er grunnurinn í sjúkranuddi en sjúkranuddarar beita ýmsum öðrum aðferðum samhliða því, svo sem:
o Bandvefsnuddi
o Triggerpunktameðferð
o Heitum og köldum bökstrum
o Vatnsmeðferð, vaxmeðferð (parafin)
o Hreyfingarfræði
o Bjúgmeðferð
o Teygjum og styrkjandi æfingum
o Fræðslu og mörgu fleiru
Sjúkranuddarar starfa víða, t.d. á Heilsustofnun NLFÍ Hveragerði, á eigin stofum, sjúkrahúsum, heilsugæslustöðvum og heilsuræktarstöðvum.
Um sjúkranuddara gildir reglugerð nr. 204/1987 með breyt. nr. 285/1989
Sjúkranuddarafélag Íslands á aðild að Samtökum heilbrigðistétta
Uppfært 4. nóvember 2008