Náttúrufræðingar

Náttúrufræðingar í heilbrigðisþjónustu hafa lokið B.S. prófi eða sambærilegu háskólaprófi í raungreinum með höfuðáherslu á greinar heilbrigðisvísinda (medical science); frumu- og sameindalíffræði, eðlis- og efnafræði, lífeðlis- og lífefnafræði, erfðafræði og líftækni, örveru- og veirufræði, ónæmisfræði, blóðbankafræði, vefjafræði, meinafræði, faraldsfræði, tölfræði og kerfislíffræði, ásamt eins árs starfsþjálfun á sérhæfðum rannsóknastofum heilbrigðisstofnana.

Náttúrufræðingar starfa að sérhæfðum þjónustu- og/eða grunnrannsóknum, sem tengjast greiningu sjúkdóma og stuðla að auknum skilningi á orsökum og eðli þeirra. Þeir sjá um þjónustu- og/eða grunnrannsóknir á sínu sérsviði, annast úrvinnslu gagna, fræðslu og þjálfun.

Um náttúrufræðinga gildir reglugerð nr. 272/1991

Félag íslenskra náttúrufræðinga

Uppfært 4. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli