Matvælafræðingar

Matvælafræðin er nýleg vísindagrein sem fjallar um eiginleika matvæla og þau lögmál sem liggja að baki matvælavinnslu, skemmdum á matvælum og geymslu þeirra. Matvælafræðin hagnýtir ýmsar greinar raunvísinda, þar á meðal efnafræði, líffræði og eðlisfræði. Flest matvæli eru samsett úr miklum fjölda efna og ráðast eiginleikar matvælanna því af samspili margra þátta. Líftækni er mikilvæg í matvælafræði og geta sumar greinar matvælaiðnaðarins talist líftækniiðnaður.

Matvælafræðin tekur í vaxandi mæli mið af rannsóknum í næringarfræði, enda er ljóst að mataræði hefur veruleg áhrif á heilsu og kröfur til hollustu matvæla hafa aukist.

Matvælafræðingar starfa einkum í matvælafyrirtækjum, rannsóknastofum, stjórnsýslu, ráðgjafaþjónustu, sölusamtökum og matvælaeftirliti.

Starfssviðið er einkum rannsóknir og greiningar, vöruþróun, framleiðslustjórnun, gæðastjórnun, gæðamat, innra eftirlit, efnainnihald og merkingar matvæla, hollusta og öryggi matvæla. Ráðgjöf og þjónusta, eftirlit og löggjöf, kennsla og fræðsla.

Um matvælafræðinga gildir reglugerð nr. 432/1987 um starfsheiti og starfsréttindi matvælafræðinga.

Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands

Uppfært 5. febrúar 2009




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli