Læknaritarar
LæknaritararLæknaritari skrifar eftir handriti eða segulbandi læknis sjúkraskýrslur, dagnótur, læknabréf, útskriftir, skoðanir sérfræðinga, aðgerðarlýsingar, röntgenlýsingar, dánarvottorð og ýmis vottorð fyrir sjúklinga. Auk þess fyrirlestra, ritgerðir, greinar og önnur atriði vísindalegs eðlis á íslensku, ensku eða norðurlandamálum.
Læknaritarar hafa umsjón með skráningu sjúkdómsgreininga og aðgerða og að greiningarnúmer séu rétt skráð og þurfa því að þekkja helstu sjúkdómsflokkunarkerfi og aðgerðarflokkunarkerfi.
Læknaritarar hafa umsjón með spjaldskrám og varðveislu sjúkraskráa og annarra skjala. Þess vegna er þekking á varðveislu upplýsinga, skráningakerfa af ýmsum toga og upplýsingaleit í nútímasamfélagi nauðsynleg.
Læknaritarar hafa einnig umsjón með umfangsmiklum ársskýrslum um læknisfræðileg efni.
Læknaritarar starfa víða innan heilbrigðiskerfisins, svo sem á sjúkrahúsum og hinum ýmsu deildum þeirra, t.d. lyflækningadeildum, skurðdeildum, fæðingardeildum, röntgendeildum, geðdeildum, gjörgæsludeildum, göngudeildum sjúkrahúsanna, rannsóknadeildum o.s.frv. Einnig á heilsugæslustöðvum, heimilislæknastofum og stofnunum hins opinbera er fara með stjórnunarmál á heilbrigðissviði.
Um læknaritara gildir reglugerð nr. 161/1987.
Siðareglur læknaritara
Félag íslenskra læknaritaraUppfært 5. febrúar 2009