Lyfjatæknar

Samkvæmt reglugerð nr. 199 frá 8. apríl 1983, 3. gr er starfsvettvangur lyfjatækna eftirfarandi.

Starfsvið lyfjatækna eru störf við lyfjaafgreiðslu og lyfjagerð undir handleiðslu og á ábyrgð lyfjafræðings.

Heimilt er að veita lyfjatækni takmarkaðan og staðbundin afgreiðslurétt úr lyfjaforða sbr. 24. gr.laga um lyfjadreifingu nr. 76/1982.
 

Lyfjatæknir

  • vinnur í lyfjaverslun, sjúkrahúspóteki, hjá opinberri stofnun, lyfjaframleiðslu, lyfjaheildsölum, við móttöku, blöndun, frágang, eftirlit og sölu á lyfjum, auk sölu og kynningar á heilsu og hjúkrunarvörum.
  • sinnir almennri afgreiðslu í lyfjaverslun og veitir viðskiptavinum faglega ráðgjöf um val, notkunarsvið, geymslutíma og geymsluaðferðir á lausasölulyfjum og lyfjum út á lyfseðil, hjúkrunar- og sjúkragögnum og heilsuvörum
  • vinnur með lyfjafræðingum við afgreiðslu lyfja samkvæmt lyfseðlum frá læknum, og skráir í tölvu ýmsar upplýsingar um sjúkling;
  • aðstoðar lyfjafræðing við blöndun lyfja;
  • tekur á móti , skráir í tölvu og hefur eftirlit með hráefnis-, lyfja- og vörubirgðum, færir og fer reglulega yfir fyrningarskrá og fjarlægir úrelt lyf og efni;
  • sér um bókhald, gerir skýrslur, pantar inn og fl.
  • setur í lyfjakistur skipa og báta, nauðsynleg lyf og hjúkrunargögn skv. opinberum reglugerðum og fjarlægir fyrnd lyf;
  • starfar í sjúkrahúsapóteki við að taka til lyf fyrir deildir sjúkrahússins; tekur til dagskammta fyrir sjúklinga og blandar næringarvökva sem gefa á í æð í samráði við lyfjafræðing;
  • starfar hjá opinberum stofnunum við umsjón og eftirlit mála er snerta lyf, lyfjaframleiðslu og lyfjainnflutning, endurskoðar t.d. lyfseðla og lyfjareikninga og kannar lyfjanotkun;
  • tekur á móti pöntunum frá apótekum, sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum hjá lyfjaheildsölum, auk þess að annast kynningar og sölu á hjúkrunarvörum og lausasölulyfjum;
  • starfar hjá lyfjaframleiðslufyrirtækis m.a. við framleiðslu, við gæðaeftirlit, og á rannsóknarstofu.
  • getur haft yfirumsjón með lyfjaforða.

Um lyfjatækna gildir reglugerð nr. 199/1983 með breyt. nr. 379/1992 og breyt. nr. 395/1992.

Lyfjatæknafélag Íslands

Uppfært 3. nóvember 2008.




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli