Ljósmæður

Skilgreining - Samþykkt af alþjóða samtökum ljósmæðra ICM, Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni WHO, og Alþjóðasamtökum fæðingar- og kvensjúkdómalækna FIGO.

„Ljósmóðir" er einstaklingur, sem hefur lokið námi í ljósmóðurfræði sem er viðurkennt í því landi sem það var stundað. Hún hefur lokið náminu með viðunandi vitnisburði og hlotið leyfi viðkomandi yfirvalda til að stunda ljósmæðrastörf.

Ljósmóðir þarf að geta séð um nauðsynlegt eftirlit, umönnum og ráðgjöf til kvenna á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu, stundað fæðingarhjálp á eigin ábyrgð og annast nýbura og ungbörn. Þessi umönnun felur í sér fyrirbyggjandi aðgerðir, greiningu á frávikum hjá móður og barni, aðstoð við læknismeðferð og bráðahjálp í fjarveru læknis.

Ljósmóðir gegnir mikilvægu hlutverki í heilbrigðisfræðslu og ráðgjöf ekki aðeins fyrir konur, heldur fjölskylduna og samfélagið í heild. Hlutverk ljósmóður ætti að fela í sér fjölskylduáætlun, undirbúning fyrir foreldrahlutverkið, fræðslu fyrir fæðinguna, umönnun barna og einnig að hluta til fræðslu vegna kvensjúkdóma. Ljósmóðir getur starfað á sjúkrahúsum, á stofu, í heilsugæslustöðvum, í heimahúsi eða annars staðar í heilbrigðisþjónustunni.

Ljósmæðralög

Siðareglur ljósmæðra

Ljósmæðraskrá

Ljósmæðrafélag Íslands

Uppfært 9. október 2009




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli