Hnykkjar
Hnykkjar (kírópraktorar) meðhöndla vandamál í stoðkerfi líkamans, þ.e. í liðum, vöðvum og festingum. Flestir leita til kírópraktora vegna verkja í baki (þursabit, vöðvabólga, brjósklos, klemmd taug), og verkja í hálsi og handleggjum. Meðferðin byggir á liðlosun, snöggu, nákvæmu átaki sem hreyfir liðinn og oft heyrist smellur í liðnum við meðferðina. Einnig er notað staðbundið nudd/þrýstipunktar, teygjur og ráðleggingar um æfingar og líkamsbeitingu. Hver kírópraktor hefur aðeins mismunandi áherslur en í aðalatriðum er meðferðin eins.
Um hnykkja gildir reglugerð nr. 60/1990.
Uppfært 14. nóvember 2008
Starfsleyfi
Starfsleyfi