Geislafræðingar
Algengasti starfsvettvangur geislafræðinga er myndgreiningardeildir (röntgendeildir), á sjúkrahúsum, heilsugæslustöðvum og einkareknum læknastöðvum. Það eru þó ekki einu staðirnir því geislafræðingar starfa einnig hjá Krabbameinsfélagi Íslands, Geislavörnum ríkisins og á geislameðferðardeild Landspítala.
Á myndgreiningardeildum starfa geislafræðingar með sérfræðingum í geislagreiningu (röntgenlæknum) og aðstoðarfólki við framkvæmd myndgreiningarrannsókna. Geislafræðingar gegna nú mjög vaxandi hlutverki í sjúkdómsgreiningu og meðferð sjúkdóma, því myndgreining af ýmsu tagi verður sífellt mikilvægari þáttur í allri heilbrigðisþjónustu.
Geislafræðingar stjórna flestum tækjum sem notuð eru við myndrannsóknir. Þeir sinna líka sjúklingunum og þurfa þess vegna að búa yfir þekkingu á þörfum þeirra og sjúkdómum auk tækniþekkingarinnar.
Miklar framfarir á þessu sviði gera starf geislafræðinga fjölbreytt og spennandi, sífellt þarf að fylgjast með nýjungum í aðferðum og tækni, og stuðla þannig að meiri nákvæmni í sjúkdómsgreiningu.Um geislafræðinga gildir reglugerð nr. 185/2001
Uppfært 3. nóvember 2008