Fótaaðgerðafræðingar

Fótaaðgerðafræðingar sinna meðferð á fótameinum fyrir neðan ökkla, þ.e. á yfirborði húðar og tánöglum. Í starfi fótaaðgerðafræðinga felst:

  • skoðun á hreyfigetu og álag á fætur, ástand húðar og nagla meti.
  • klipping og þynning tánagla
  • fjarlægt sigg og líkþorn
  • vörtumeðferð
  • meðferð á inngrónum tánöglum m.a. með stál- eða plastspöngum
  • sérhæfð meðferð á fótum sykursjúkra: húðin skoðuð, hreyfigeta, mæling á tilfinningu, næmni, sársauka, blóðflæði, sárameðferð og ráðgjöf.
  • hlífðarmeðferð, sem felur í sér m.a. gerð skóinnleggja og sílikon stoðhlífa, bæði til réttingar og hlífðar fótum.

Fótaaðgerðafræðingar veita einnig áðgjöf varðandi fótaumhirðu og vali á skóm og öðrum fótabúnaði.

Um fótaaðgerðafræðinga gildir reglugerð nr. 184/1991.

Starfandi eru tvö félög fótaaðgerðafræðinga.

Síðast breytt/uppfært 4. maí 2011




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli