Heilbrigðisstéttir

 Heilbrigðisstarfsfólk að störfum

Starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar myndar heild þar sem hver hefur sitt hlutverk. Til þess að geta fullnægt skyldum sínum hefur heilbrigðisþjónustan á að skipa heilbrigðisstéttum, en það eru þær stéttir sem sem njóta lögverndaðs starfsheitis og þurfa starfsleyfi landlæknis til að starfa. Á Íslandi eru starfandi 32 heilbrigðisstéttir, sumar hverjar einnig með lögverndað starfssvið.

Innan heilbrigðisþjónustunnar starfar þar að auki fólk með sérþekkingu á öðrum sviðum, s.s. lögfræði, verkfræði, viðskiptafræði, svo og stór hópur sem sinnir almennum störfum, ræstingum, skrifstofustörfum, öryggisgæslu o.fl.  

Hinn 1. apríl 2008 tóku gildi lög um breytingu á ýmsum lögum vegna flutnings á útgáfu starfsleyfa til landlæknis. Með hinum nýju lögum tekur Landlæknisembættið við hlutverki heilbrigðisráðuneytisins og veitir öllum heilbrigðisstéttum starfsleyfi. Umsóknir um starfsleyfi heilbrigðisstétta verða alfarið afgreiddar hjá Landlæknisembættinu, en umsóknarferlið sjálft er í stórum dráttum óbreytt.

Sótt er um starfsleyfi til Landlæknisembættisins á þar til gerðum eyðublöðum. Hið sama gildir um sérfræðileyfi tiltekinna heilbrigðisstétta. Eyðublöðin er hægt að nálgast hér á vefnum (sjá síðuna Starfsleyfi.  Landlæknir leggur faglegt mat á hvort öllum skilyrðum fyrir veitingu starfsleyfisins hefur verið fullnægt og gefur síðan út starfsleyfið.

Hér fyrir neðan er listi yfir allar heilbrigðisstéttir sem njóta lögverndaðs starfsheitis og þurfa starfsleyfi landlæknis.

Áfengis- og vímuefnaráðgjafar
Félagsráðgjafar
Fótaaðgerðafræðingar
Geislafræðingar
Hjúkrunarfræðingar
Hnykkjar
Iðjuþjálfar
Lífeindafræðingar
Ljósmæður
Lyfjafræðingar
Lyfjatæknar
Læknar
Læknaritarar
Matartæknar
Matvælafræðingar
Náttúrufræðingar
Næringarfræðingar
Næringarráðgjafar
Næringarrekstrarfræðingar
Osteópatar
Sálfræðingar
Sjóntækjafræðingar
Sjúkraflutningamenn
Sjúkraliðar
Sjúkranuddarar
Sjúkraþjálfarar
Stoðtækjafræðingar
Talmeinafræðingar
Tannfræðingar
Tannlæknar
Tanntæknar
Þroskaþjálfar

Síðast breytt/uppfært 14. október 2010




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli