Stofnanir í heilbrigðisþjónustu

 

Í lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007 er annars vegar gert ráð fyrir að starfræktar séu heilsugæslustöðvar og hins vegar sjúkrahús. Samkvæmt lögunum er landinu skipt í heilbrigðisumdæmi og eru þau sjö talsins skv. reglugerð nr. 785/2007. Í hverju umdæmi er starfrækt heilbrigðsstofnun, ein eða fleiri.

Heilbrigðisstofnanir 
hafa með höndum starfrækslu heilsugæslustöðva og umdæmissjúkrahúsa sem veita almenna heilbrigðisþjónustu í umdæminu.

Heilsugæslustöðvar
sinna heilsugæslu og eru þær ýmist reknar sem sjálfstæðar heilbrigðisstofnanir eða sem hluti af stærri heilbrigðisstofnun. 
Með heilsugæslu er átt við m.a. almennar lækningar, hjúkrun, heilsuvernd, forvarnir og bráða- og slysamóttöku (sbr. reglugerð nr. 787/2007).

Sjúkrahús
taka við sjúku fólki til vistunar og veita læknishjálp, hjúkrun og aðra þjónustu eftir þörfum. Samkvæmt núgildandi lögum um heilbrigðisþjónustu skiptast sjúkrahús eftir tegund og þjónustu í:

  • Umdæmissjúkrahús. Sjúkrahús sem ein sér eða í samvinnu við önnur veita almenna sjúkrahúsþjónustu bæði á göngu- og dagdeildum. Oftast eru þar einnig hjúkrunarrými. Þar er veitt fæðingarhjálp, ef sérþekking á henni er fyrir hendi, og önnur þjónusta sem samið hefur verið um.

  • Sérhæfð sjúkrahús. Landspítali og Sjúkrahús Akureyrar veita sérhæfða sjúkrahúsþjónustu.


Stofnanir í heilbrigðisþjónustu


Aðrar upplýsingar

Fjöldi rúma á sjúkrahúsum og heilbrigðisstofnunum (PDF)
(tölur frá heilbrigðisráðuneytinu fyrir árin 2005 og 2007. Opnast í nýjum glugga)

Fjöldi vistrýma fyrir aldraða
(opnast á vef heilbrigðisráðuneytisns)


                                                                                                                                          

Uppfært 14. apríl 2009




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli