Lyfjafréttir
19.1.2012
Málþing Embættis landlæknis á Læknadögum
Embætti landlæknis bar ábyrgð á hálfs dags málþingi á Læknadögum þriðjudaginn 17. janúar um lyfjaávísanaeftirlit embættisins.Lesa nánar
12.9.2011
Um bólur og barneignir
Í Sérlyfjaskrá er ítarlega gerð grein fyrir fósturskemmandi áhrifum ísótretínóíns (sérlyfjanna Decutans og Ísótretínóins), sem notað er við erfiðum bólutilfellum. Talsvert nákvæmar leiðbeiningar eru um hvernig haga beri málum ef algjör nauðsyn þykir að kona á barneignaaldri taki lyfið.Lesa nánar
28.2.2011
Talnabrunnur er kominn út
Febrúartölublað Talnabrunns er komið út á vef Landlæknisembættisins. Í þessu tölublaði er greint frá lyfjaeftirliti embættisins á árinu 2010 annars vegar og biðlistum vegna skurðaðgerða á sjúkrahúsum nú í febrúarlok hins vegar.Lesa nánar
28.12.2010
Spornað við misnotkun lyfja gegn ofvirkni og athyglisbresti
Landlæknisembættið vekur athygli á nýlegri frétt á vef heilbrigðisráðuneytisins þar sem greint er frá tillögum vinnuhóps um leiðir til að sporna við misnotkun metýlfenidatslyfja. Felast þær m.a. í því að frumgreining á ADHD (ofvirkni og athyglisbrests) hjá fullorðnum verður undir yfirumsjón geðsviðs Landspítala, hert verður á tilkynningarskyldu til landlæknis og teknar upp breyttar reglur um lyfjaskírteini.Lesa nánar
26.10.2010
Lyfjagjafir í grunnskólum
Landlæknisembættið hefur birt leiðbeiningar um tilhögun lyfjagjafa til nemenda í grunnskólum, sjá vef Landlæknisembættisins: Lyfjagjafir í skólum. Ljóst er að ákveðinn fjöldi nemenda þarf á lyfjagjöf að halda vegna heilsufarsvanda.Lesa nánar
18.11.2009
Engin aukning á notkun geðlyfja í kreppunni
Einn þeirrra mælikvarða sem Landlæknisembættið hefur til þess að meta hugsanleg áhrif kreppunnnar á heilbrigði landsmanna er að fylgjast með notkun geðlyfja og bera saman við fyrri ár.Lesa nánar
12.8.2009
Engin aukning á notkun róandi lyfja í kreppunni
Landlæknisembættið hefur borið saman notkun geðlyfja fyrstu sjö mánuði þessa árs miðað við sömu mánuði undanfarin ár.Lesa nánar
15.4.2009
Tysabrimeðferð MS-sjúklinga hér á landi og á hinum Norðurlöndunum
Landlæknisembættinu hafa borist upplýsingar um fjölda þeirra MS-sjúklinga sem fengið hafa lyfið Tysabri á Norðurlöndunum miðað við 15. febrúar 2009.Lesa nánar
16.1.2009
Skýrsla um lyfjaávísanir á Íslandi árið 2007 komin út
Fyrsta ársskýrsla um ávísanir lyfja á Íslandi er komin út á vef Landlæknisembættisins. Í þessari skýrslu er greint frá lyfjaávísunum lækna á Íslandi árið 2007 og tölur hér á landi bornar saman við lyfjaávísanir í nágrannalöndunum.Lesa nánar
23.4.2008
Endurskoðuð þarfagreining fyrir lyfjagagnagrunn landlæknis
Á vef Landlæknisembættisins hefur nú verið gefin út endurskoðuð þarfagreining lyfjagagnagrunns embættisins. Í núgildandi lyfjalögum, nr. 93/1994, með síðari breytingum, er kveðið á um að varðveislutími gagna í lyfjagagnagrunni landlæknis skuli vera þrjú ár. Heilbrigðisráðherra mælti nýlega fyrir frumvarpi til breytinga á lyfjalögum þar sem m.a. er gert ráð fyrir lengdum varðveislutíma.Lesa nánar
10.12.2007
Fræðigrein um notkun methylphenidats (Rítalíns og skyldra lyfja) meðal barna á Íslandi 1989-2006
Í nýjasta hefti Læknablaðsins er grein eftir Helgu Zoëga, verkefnisstjóra hjá Landlæknisembættinu, Gísla Baldursson, sérfræðing á BUGL, og Matthías Halldórsson aðstoðarlandlækni um notkun methylphenidats meðal barna á Íslandi 1989-2006, greint eftir kyni, aldri og búsetu sjúklings, verkunartíma lyfs og sérgrein læknis sem ávísaði lyfinu.Lesa nánar
23.11.2007
Viðskiptaráðherra meðal frummælenda á fundi um íslenska lyfjamarkaðinn
Morgunverðarfundur um undir yfirskriftinni „Fákeppni og samkeppnishindranir á íslenskum lyfjamarkaði“ verður haldinn á vegum Rannsóknastofnunar um lyfjamál við Háskóla Íslands þann 29. nóvember næstkomandi, kl. 8:15-10:00, í Námunni, Endurmenntun H.Í., Dunhaga 7, Reykjavík.Lesa nánar
19.11.2007
Lyfjalistar með ráðleggingum til lækna um fyrsta val gegn algengum sjúkdómum
Í samvinnu við Guðrúnu I. Gylfadóttur, lyfjafræðing og deildarstjóra Lyfjadeildar Tryggingastofnunar ríkisins, er nú unnið að gerð lyfjalista sem er ætlaður læknum. Á lyfjalistanum eru talin upp þau lyf sem ráðlögð eru sem fyrsta val í meðferð á algengustu sjúkdómum.Lesa nánar
09.10.2007
Hvernig opnum við íslenska lyfjamarkaðinn? Málþing Rannsóknastofnunar um lyfjamál við Háskóla Íslands
Miðvikudaginn 10. október efnir Rannsóknastofnun um lyfjamál við Háskóla Íslands til málþings um lyfjastefnu á Íslandi og möguleika á að opna íslenska lyfjamarkaðinn.Lesa nánar
02.10.2007
Grunur um misnotkun lyfja til að sljóvga fórnarlömb í nauðgunarmálum hefur ekki verið staðfestur hér á landi.
Nauðganir eru meðal svívirðilegustu ofbeldisverka sem framin eru og rétt að leita allra leiða tl að þess að koma í veg fyrir þær.Lesa nánar
08.6.2007
Hversu hættulegt er að nota getnaðarvarnapillur?
Undanfarið hafa birst fréttir af aukinni hættu á blóðtappa samfara töku getnaðarvarnartaflna, og hefur tegundin Yasmin sérstaklega verið nefnd. Þekkt er að Yasmin og aðrar samsettar getnaðarvarnarpillur (sem innihalda estrogen og progesteron) auka hættu á blóðtappa. Talið er að áhættuaukningin sé tvöföld miðað við konur sem ekki taka pilluna.Lesa nánar
14.3.2007
Lyfið Amilín frá Actavis loks fáanlegt eftir margra vikna bið
Geðlæknar og sjúklingar þeirra hafa undanfarnar vikur kvartað yfir skorti á lyfinu Amilín, sem er gamalgróið lyf við þunglyndi.Lesa nánar
09.3.2007
Læknadóp?
Í Fréttablaðinu var nýlega fréttaskýring með fyrirsögn um að misnotkun á lyfseðilsskyldum lyfjum hefði aukist gríðarlega.Lesa nánar
18.10.2006
Skipholtsapótek ódýrast
Í könnun Alþýðusambands Íslands á lyfjaverði 12. október síðastliðinn reyndist lyfjaverð lægst í Skipholtsapóteki.Lesa nánar
05.10.2006
Umræða um geðlyf í Kastljósi Sjónvarpsins undanfarna daga
Í ljósi umræðna um geðlyf í Kastljósi Sjónvarpsins undanfarna daga, þar sem hefur verið látið í veðri vaka að geðlyf séu skaðleg og geðsjúkdómar hafi aukist af þeim sökum, þykir Landlæknisembættinu ástæða til að vekja athygli á ummælum Kristins Tómassonar geðlæknis á vef Læknafélagsins.Lesa nánar
14.6.2006
Garðsapótek með lægsta lyfjaverðið
Allt að 68% verðmunur reyndist vera milli lyfjabúða í könnun sem Alþýðusamband Íslands (ASÍ) hefur látið gera á hluta sjúklings í verði lyfseðilsskyldra lyfja í lyfjabúðum á höfuðborgarsvæðinu.Lesa nánar
16.5.2006
Þróun lyfjaverðs
Á undanförnum dögum, mánuðum og misserum hefur verið mikil umræða um hátt lyfjaverð á Íslandi, samanborið við verð hliðstæðra lyfja í nálægum löndum. Til Landlæknisembættisins hafa ítrekað borist ábendingar í þessa veru frá sjúklingum og læknum.Lesa nánar
05.4.2006
Lyfjauglýsingar - lyfjaupplýsingar
Hér á landi er heimilt að auglýsa fyrir almenningi þau lyf sem ekki eru lyfseðilsskyld. Lyfseðilsskyld lyf má ekki auglýsa.Lesa nánar
07.2.2006
Engin fjölgun einstaklinga sem fá Rítalín og skyld lyf gegn lyfseðli milli 2004 og 2005
Ástæða hefur þótt til að fylgjast sérstaklega með ávísunum á lyfið metýlfenídat (Ritalín, Concerta, Ritalín Uno, Equasym), en lyfið er helst notað við ofvirkni með athyglisbresti (ADHD).Lesa nánar
23.1.2006
Veirulyf gegn inflúensu
Töluvert hefur borist af fyrirspurnum frá almenningi um hvort ráðlegt sé að eiga birgðir af veirulyfjum (Tamiflu eða Relenza) í heimahúsum til eigin nota. Sóttvarnalæknir mælir ekki með því að almenningur verði sér út um slíkar birgðir.Lesa nánar
29.11.2005
Breyting á lyfseðilsskyldu verkjalyfja hefur gengið vel fyrir sig
Eins og kunnugt er voru lyf sem innihalda kódein tekin úr lausasölu þann 1. október 2005 og voru þau gerð lyfseðilsskyld. Hér er einkum um að ræða lyfið Parkódín.Lesa nánar
27.9.2005
Lausasölulyf sem innihalda kódein tekin úr umferð
Vinnuhópur á vegum Lyfjastofnunar og Landlæknisembættisins hefur lagt til að lausasölulyf sem innihalda kódein verði tekin úr umferð hér á landi. Frá 1. október verða þau einungis til samkvæmt lyfseðli. Er þetta gert til að sporna við morfín- og kódeinfíkn, sem hefur aukist undanfarin ár.Lesa nánar
22.9.2005
Lyf á biðlista
Í sjónvarpsfréttum í gær gerði fulltrúi Félags íslenskra stórkaupmanna lítið úr þeim óþægindum sem sjúklingar hafa orðið fyrir vegna þess að heildsalar hafa ekki átt skráð lyf á lager. Lét hann að því liggja að þetta væri einungis spurning um pakkningastærðir. Það er alrangt.Lesa nánar
26.5.2005
Enn um Rítalín
Í DV nýlega lét ritstjóri blaðsins, Jónas Kristjánsson, svo um mælt að landlæknir hefði einhverja „afskekkta rannsókn til stuðnings máli sínu þegar því væri haldið fram að Ritalín væri ekki ávanabindandi fyrir börnLesa nánar
10.5.2005
Meðferð ofvirkniröskunar
Umræður hafa orðið í fjölmiðlun að undanförnu vegna meintrar ofnotkunar lyfsins methylphenydats fyrir börn með ofvirkni/athyglisbrest í tilefni af fyrirspurn Ragnheiðar Ástu Jóhannesdóttur alþingismanns.Lesa nánar
26.4.2005
Endurskoðun Lyfjastofnunar Evrópu á þunglyndislyfjum fyrir börn lokið
Í júní 2004 gaf Landlæknisembættið út dreifibréf vegna notkunar svokallaðra sérhæfðra serótónín - upptökuhemla (SSRI) hjá börnum og unglingum, en um er að ræða lyf við þunglyndi og einnig þráhyggju-árátturöskunLesa nánar
26.4.2005
Rimaapótek og Lyfjaver með ódýrustu lyfin
Alþýðusamband Íslands, í samráði við Samtök verslunar og þjónustu og Landlæknisembættið hefur látið gera kannanir á lyfseðilsskyldum lyfjum. Síðasta könnunin var gerð þann 20. apríl síðastliðinn.Lesa nánar
18.2.2005
Evrópska lyfjastofnunin varar enn frekar við nýju gigtarlyfjunum
Evrópska lyfjastofnunin ákvað í gær að gigtarlyfið Celebra og önnur lyf úr sama flokki, sem hér á landi eru Arcoxia, Bextra og Dynastat skuli merkt með sérstökum varúðarmerkingum.Lesa nánar
18.12.2004
Nýjar fréttir um aukaverkanir gigtarlyfsins Celebra
Tilkynnt var í gær að langtímarannsókn á gigtarlyfinu Celebra (celecoxib) hafi verið hætt vegna óæsliklegra áhrifa á hjarta-og æðakerfi, svo sem segamyndunar í kransæðum (kransæðastíflu) og í heilaæðum (heilaablóðföllum).Lesa nánar
14.12.2004
Var ástæða til að taka Vioxx af markaði fyrir fjórum árum?
Eins og mörgum er kunnugt tók lyfjafyrirtækið Merck Sharp & Dohme gigtarlyfið rófekoxíb (Vioxx) af markaði þann 30. september sl. vegna þess að fram höfðu komið upplýsingar um auknar líkur á sjúkdómum í hjarta og æðakerfi, einkum kransæðastíflu, hjá sjúklingum sem tekið höfðu lyfið í meira en 18 mánuði.Lesa nánar
08.10.2004
Vioxx endurgreitt - Hver er staða annarra lyfja í sama flokki?
Eins og fram kom í frétt hér á síðunni 1. október sl. ákvað fyrir Merck Sharp & Dohme, Incorporated að taka lyfið Vioxx af markaði að eigin frumkvæði. Samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu verða lyfin Vioxx og Vioxxakut endurgreidd af fyrirtækinu.Lesa nánar
06.10.2004
Innkallað inflúensubóluefni ekki á markaði á Íslandi
Bóluefnið Fluvirin frá Evans Vaccines Limited hefur verið innkallað af markaði vegna ófullnægjandi aðstæðna í framleiðslu.Lesa nánar
01.10.2004
Vioxx gigtarlyfið tekið af markaði
Þann 30. september 2004 ákvað fyrirtækið Merck, Sharp & Dohme Inc. að eigin frumkvæði að taka lyfið Vioxx af markaði í öllum löndum þar sem það hefur verið selt, þar með talið hér á landi.Lesa nánar
01.9.2004
Niðurgreiðslur örvandi lyfja einungis gegn framvísun lyfjaskírteinis frá 1. september 2004
Undir lyfjaflokkinn örvandi lyf falla lyfin Amfetamín, Ritalin, Ritalin Uno, Concerta og Modiodal. Samkvæmt reglugerð heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, sem tekur gilidi 1. september, verður greiðsluþátttaka Tryggingastofnunar vegna þessara lyfja háð framvísun lyfjaskírteinis.Lesa nánar
31.8.2004
Greiðsluþátttaka í bólgueyðandi verkjalyfjum skilyrt með nýrri reglugerð
Greiðsluþátttaka almannatrygginga í tveimur lyfjaflokkum breytist frá og með 1. september 2004 með nýrri reglugerð frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti. Þar kemur m. a. fram að coxíb-II lyf, sem er nýlegur og dýr flokkur bólgueyðandi verkjalyfja, ...Lesa nánar
07.7.2004
Notkun þunglyndislyfja hjá börnum og unglingum
Landlæknisembættið og Lyfjastofnun hafa nýlega sent dreifibréf til lækna vegna mikillar umræðu víða um heim um mögulega hættu á notkun ákveðins flokks þunglyndislyfja, svonefndra SSRI-lyfja, hjá börnum og unglingum.Lesa nánar
Aðrir vefir
Aðrir vefir