Eftirlit með heilbrigðisstofnunum

Landlækni ber að hafa faglegt eftirlit með öllum heilbrigðisstofnunum samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007 og  lögum um landlækni nr. 41/2007 . Þeir sem hyggjast hefja rekstur í heilbrigðisþjónustu skulu tilkynna það til landlæknis.

 Landspítalinn við Hringbraut
Landlæknisembættið sinnir þessu hlutverki sínu með því að gera skipulega úttekt á heilbrigðisstofnunum. Úttektin hefur það markmið að tryggja gæði þjónustunnar og hvetja til umbóta, þar sem þess gerist þörf. Unnið er eftir samræmdri aðferð sem er fólgin í því að meta starfsemi stofnana á fjórþættan hátt út frá:

  • Upplýsingum sem fyrir liggja um stofnunina hjá Landlæknisembættinu. 

  • Upplýsingum frá stjórnendum stofnunarinnar um starfsemi og starfsmannamál.

  • Viðhorfum starfsmanna á stofnuninni sem embættið leitar til með spurningalistum. 

  • Þjónustukönnun sem gerð er meðal þeirra sem fá þjónustu á stofnuninni.

Stofnunin er síðan heimsótt og rætt við stjórnendur og starfsfólk og aðstaðan skoðuð. Niðurstöður úttektarinnar byggja á öllum þáttum ofangreindrar gagnasöfnunar og eru þær sendar framkvæmdastjórn með tillögum til úrbóta og þeim fylgt eftir að ári liðnu.

Auk þessa skipulega eftirlits heimsækir Landlæknisembættið stofnanir til að leggja mat á sérstaka þætti í starfsemi þeirra vegna ábendinga, óska um úttekt á gæðum eða ef alvarleg atvik hafa átt sér stað.

Grunnur hefur verið lagður að eftirliti með sjálfstætt starfandi sérfræðingum.

Sjá einnig: Eftirlit Landlæknisembættisins með heilbrigðisþjónustu. Greinargerð, desember 2009


Uppfært 1. júní 2011

Skylt efni á þessum vef

Skylt efni á þessum vef



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli