Samhæfingarstöð almannavarna
|
|
Hlutverk almannavarnadeildar á neyðar- og hættutímum er meðal annars að fara með yfirstjórn aðstoðar milli umdæma og aðstoðar ríkisstofnana við almannavarnir í héraði. Auk starfsfólks almannavarnadeildar er samhæfingarstöðin mönnuð hjálparliði sem kemur frá margvíslegum stofnunum og félagasamtökum sem virkjast að hluta eða öllu leyti í almannavarnaaðgerðum. Alls eru rúmlega 40 manns í áhöfn stjórnstöðvar.
Þann 1. júní 2008 gerði Landlæknisembættið samning við Landspítala um að taka að sér verkefni fulltrúa embættisins í starfsstöð landlæknis í Samhæfingarstöð Almannavarna.
Verkefni starfsstöðvarinnar eru:
- Upplýsingaöflun um virkjun sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana, greiningasveita, lækna, hjúkrunarfræðinga, áfallahjálparteyma og fyrstuhjálparliðs í héraði.
- Mat á þörf fyrir utanaðkomandi aðstoð í formi mannafla, búnaðar, lyfja og tækja í samvinnu við tengilið á heilbrigðisstofnun eða í almannavarnanefnd.
- Skipulag á flutningi hjálparliðs heilbrigðisstarfsmanna milli umdæma í samráði við stjórnanda Bjargir og verkþáttinn Flutninga og samgöngur.
- Stjórn á flutningi slasaðra milli umdæma í samvinnu við Framkvæmdir og starfsstöð Vegagerðar og Flugmálastjórnar.
- Ákvörðun um móttökusjúkrahús utan umdæmis og ráðgjöf um verkefnið eftir þörfum hverju sinni.
- Skipulag og stjórn 2. stigs áfallahjálpar í samvinnu við almannavarnanefnd og/eða aðgerðastjórn.
.
Síðast breytt/uppfært 27. maí 2010
