Sjúkraskrá - aðgangur

Reglur um meðferð upplýsinga úr sjúkraskrá eru annars vegar í lögum um réttindi sjúklinga, og hins vegar í reglugerð um sjúkraskrár og skýrslugerð varðandi heilbrigðismál, nr. 227/1991. Í 13. grein reglugerðarinnar segir orðrétt:

,,Lækni er skylt að afhenda sjúklingi eða umboðsmanni hans afrit sjúkraskrár, allrar eða að hluta. Sama gildir gagnvart opinberum aðilum sem lögum samkvæmt athuga kvörtun eða kæru sjúklings eða umboðsmanns vegna læknismeðferðar.

Upplýsingar í sjúkraskrá sem hafðar eru eftir öðrum en sjúklingi sjálfum eða heilbrigðisstarfsfólki skal ekki sýna nema með samþykki þess sem upplýsingarnar gaf.

Í hvert sinn sem afrit sjúkraskrár er afhent með þessum hætti skal það skráð á sjúkraskrána þannig að fram komi dagsetning og nafn þess sem fékk afritið.

Lækni ber að vera til aðstoðar við lestur sjúkraskrár til að skýra það sem kann að reynast torskilið."

Þegar ekki er um kvörtun eða kæru að ræða og læknir telur það ekki þjóna hagsmunum sjúklings að afhenda afrit sjúkraskrár, skal hann afhenda landlækni afrit sjúkraskrárinnar til frekari afgreiðslu. Landlæknir ákveður þá hvort synja skuli um upplýsingar, hvort afhenda skuli sjúklingi eða umboðsmanni hans afritið eða hvort gefnar verða munnlegar upplýsingar um innihald sjúkraskrárinnar.

Ef landlæknir synjar beiðni um að fá afrit sjúkraskrár afhent eða um upplýsingar um innihald sjúkraskrárinnar, þarf hann að rökstyðja synjunina. Synjun landlæknis má skjóta til úrskurðar heilbrigðisráðherra.

Sjúkraskrá látins sjúklings
Í þeim tilvikum þegar óskað er eftir afriti af sjúkraskrá látins sjúklings og ekki liggur fyrir umboð hans eða yfirlýstur vilji hins látna um að veita aðstandendum aðgang að upplýsingum í sjúkraskrá, þarf landlæknir að meta slíka ósk með hliðsjón af vilja hins látna og hagsmunum hlutaðeigandi. Slíkum beiðnum er oftast synjað.

Landlæknir byggir afstöðu sína á því að sjúkraskrár varða viðkvæm einkamál og að læknum er skylt að halda trúnað um þau atriði sem þar koma fram, einnig eftir andlát sjúklings. Því skuli ekki afhenda eftirlifandi aðstandendum sjúkraskrá látins sjúklings nema í undantekningartilvikum eða að undangengnum dómsúrskurði.


Uppfært 5. febrúar 2009




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli