Samþykki sjúklinga
Á eftirtöldum síðum er að finna þær reglur sem gilda um upplýst samþykki, svo og eyðublöð sem nota má í því skyni að afla slíks samþykkis.
Samþykki vegna meðferðar
Um samþykki vegna meðferðar segir svo í 7. grein laga um réttindi sjúklinga:
,,Virða skal rétt sjúklings til að ákveða sjálfur hvort hann þiggur meðferð.
Ákvæði lögræðislaga gilda um samþykki fyrir meðferð sjúklinga sem vegna greindarskorts, eða af öðrum ástæðum sem þau lög tilgreina, eru ófærir um að taka ákvörðun um meðferð. Í þessum tilvikum skal þó hafa sjúkling með í ráðum eftir því sem kostur er.Enga meðferð má framkvæma án samþykkis sjúklings, sbr. 1. og 2. mgr., sbr. þó 9. gr. Samþykkið skal eftir því sem kostur er vera skriflegt, þar sem fram kemur hvaða upplýsingar voru gefnar sjúklingi og að hann hafi skilið upplýsingarnar."
Samkvæmt ákvæði þessu gildir sú meginregla að ekki má gera aðgerð á sjúklingi án samþykkis hans. Er þá átt við upplýst samþykki og að það sé skriflegt, ef nokkur kostur er. Hefur landlæknir lagt til að þeirri meginreglu skuli fylgt um skurðaðgerðir og aðrar meiri háttar aðgerðir.
Undantekning frá meginreglunni á við ef sjúklingur er meðvitundarlaus eða ástand hans að öðru leyti þannig að hann er ófær um að gefa vilja sinn til kynna varðandi meðferð sem talin er bráðnauðsynleg.
Sjá einnig:
- Eyðublað fyrir samþykki sjúklings til skurðaðgerðar, svæfingar, deyfingar, sérstakrar rannsóknar eða annarrar inngripsaðgerðar (PDF) (Útg. af Landlæknisembættinu/Siðaráði landlæknis ágúst 1996)
Samþykki vegna þátttöku í vísindarannsóknum
Um samþykki fyrir þátttöku í vísindarannsóknum eru ákvæði í lögum um réttindi sjúklinga þess efnis að sjúklingur skuli fyrirfram veita formlegt, upplýst samþykki fyrir þátttöku sinni. Áður en slíkt samþykki er veitt ber að gefa honum ítarlegar upplýsingar um rannsóknina, áhættu sem henni kann að fylgja og hugsanlegan ávinning og í hverju þátttakan er fólgin.
Hér er átt við þátttöku í hvers kyns rannsóknum, hvort sem þær felast í því að gefa lífsýni, t.d. blóð, taka þátt í prófum eða svara spurningalistum. Skylt er líka að gera sjúklingi ljóst að hann getur hvenær sem er hafnað eða hætt við þátttöku í rannsókn.
Frekari fróðleik um þátttöku í vísindarannsóknum er að finna á vefsetri Vísindasiðanefndar.
Sjá einnig:
- Reglugerð nr. 286/2008 um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði.
- Upplýst samþykki - Leiðbeiningar varðandi samþykki til þátttöku í vísindarannsókn, byggt á vitneskju um rannsóknina. (útg. af Landlæknisembættinu/Siðaráði landlæknis í ágúst 1996)
- Um lífsýnasöfn
- Helsinki-yfirlýsing Alþjóðafélags lækna. Siðferðilegar meginreglur fyrir læknisfræðilegar vísindarannsóknir á mönnum (á vef Læknafélags Íslands)
Síðast breytt/uppfært 16. september 2010