Fréttir - Þjóð gegn þunglyndi
20.1.2010
Geðheilbrigði barna - fræðsluefni
Út eru komnir tveir fræðslubæklingar um geðheilbrigði barna, annar ætlaður unglingum og hinn aðstandendum barna og unglinga. Bæklingarnir eru unnir á vegum Barna- og unglingageðdeildar Landspítala (BUGL) í samstarfi við Landlæknisembættið og Lýðheilsustöð.Lesa nánar
23.11.2009
„Stuðningur barns í nærsamfélaginu – það sem barni er fyrir bestu"
Samstarfshópurinn Náum heldur heldur næsta morgunverðarfund sinn miðvikudaginn 25. nóvember nk. á Grand Hóteli í Reykjavík, kl. 8:15–10:00. Efni fundarins er: „Stuðningur barns í nærsamfélaginu - það sem barni er fyrir bestu".Lesa nánar
18.11.2009
Engin aukning á notkun geðlyfja í kreppunni
Einn þeirrra mælikvarða sem Landlæknisembættið hefur til þess að meta hugsanleg áhrif kreppunnnar á heilbrigði landsmanna er að fylgjast með notkun geðlyfja og bera saman við fyrri ár.Lesa nánar
21.9.2009
Morgunverðarfundur um sjálfsmynd og kynhegðun unglinga
Samstarfshópurinn Náum áttum heldur morgunverðarfund 30. september 2009 kl. 8.15 - 10.00 á GRAND Hóteli í Reykjavík. Umræðuefnið er sjálfsmynd og kynhegðun unglinga.Lesa nánar
09.9.2009
Kyrrðarstund til minningar um þá sem hafa fallið frá fyrir eigin hendi
Í tilefni alþjóðlegs dags sjálfsvígsforvarna verður haldin kyrrðarstund í Dómkirkjunni á morgun, 10. september 2009, frá kl. 20:00 – 20:30, á vegum Biskupsstofu, Landlæknisembættisins, Geðsviðs LSH, Geðhjálpar og fleiri aðila.Lesa nánar
25.5.2009
Hvað ætlar fjölskyldan að gera í sumar?
Morgunverðarfundur á vegum samstarfshópsins Náum áttum verður haldinn á GRAND Hóteli í Reykjavík næstkomandi miðvikudag, 27. maí 2009, kl. 8.15 - 10.00. Umræðuefni fundarins er „Hvað ætlar fjölskyldan að gera í sumar?“Lesa nánar
11.5.2009
Út úr fangelsi – inn í kreppuna
Næstkomandi föstudag, 15. maí 2009, stendur samráðsnefnd um málefni fanga fyrir morgunverðarfundi á Grand Hótel í Reykjavík kl. 8:00–10:00. Yfirskrift fundarins er „Út úr fangelsi – inn í kreppuna“ og fjallar hann um áhrif efnahagsástandsins á fanga og fjölskyldur þeirra.Lesa nánar
27.1.2009
Stöndum við vörð um velferð barna?
Á morgun, miðvikudaginn 28. janúar, stendur samstarfshópurinn Náum áttum fyrir morgunverðarfundi á Grand hóteli kl. 8.15–10.00. Yfirskrift fundarins er „Stöndum við vörð um velferð barna?”.Lesa nánar
10.12.2008
Stéttarfélög styrkja verkefnið Þjóð gegn þunglyndi
Efling-stéttarfélag hefur veitt forvarnarverkefninu Þjóð gegn þunglyndi einnar milljón króna styrk. Styrkurinn var afhentur við hátíðlega athöfn á fjölmennum fundi trúnaðarráða Verkalýðs- og sjómannafélagsins Boðans og Eflingar-stéttarfélags í gær, þann 9. desember.Lesa nánar
01.12.2008
Nýtt heimilisfang ráðgjafar LSH vegna fjármálaáfalla
Aðsetur sálfræðiráðgjafar fyrir fólk með álagseinkenni vegna fjármálakreppunnar hefur verið flutt frá Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg og er nú til húsa að Eiríksgötu 5, 1. hæð E. Símanúmer ráðgjafarinnar er óbreytt, 458-9999. Ráðgjöfin er opin á virkum dögum frá kl. 9:00 til 16:00.Lesa nánar
06.11.2008
Barnasáttmálinn - fræðslufundur 19. nóvember nk.
Morgunverðarfundur á vegum samstarfshópsins Náum áttum verður haldinn 19. nóvember 2008 á Grand hóteli í Reykjavík, kl. 8:15–10:00. Efni fundarins að þessu sinni er „Barnasáttmálinn, öryggi og vernd; hvar liggur ábyrgðin“.Lesa nánar
16.10.2008
Tölum varlega
Á erfiðum tímum sem þessum komast oft á kreik sögusagnir sem eiga litla stoð í veruleikanum. Að gefnu tilefni vill Landlæknisembættið taka fram að sjálfsvígum hefur ekki fjölgað undanfarna daga og vikur.Lesa nánar
10.10.2008
Ráðgjöf vegna fjármálaáfalla á vegum geðsviðs LSH í Heilsuverndarstöðinni
Geðsvið Landspítala opnar föstudaginn 10. október 2008, kl. 13:00, sálfræðiráðgjöf fyrir einstaklinga sem glíma við mikinn kvíða, depurð, sektarkennd eða önnur álagseinkenni vegna þróunar fjármála á Íslandi.Lesa nánar
09.10.2008
Það eru til lausnir ef fólki líður illa
Þegar fólk verður fyrir áföllum þarf það að muna að nauðsynlegt er að ræða málin við sína nánustu og fá hjá þeim þann stuðning sem hægt er. Flestum nægir slíkur stuðningur en fyrir þá sem af einhverjum ástæðum geta ekki rætt við sína nánustu eru önnur úrræði í boði.Lesa nánar
08.10.2008
Hugum að velferð barna
Íslendingar standa nú á miklum tímamótum sem hafa víðtæk áhrif á unga sem aldna. Mikilvægt er að huga sérstaklega að velferð barna og unglinga á þessum tímum.Lesa nánar
07.10.2008
Umhuga.is – Nýr vefur um geðheilsu barna
Í dag opnaði Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra nýjan fræðsluvef um geðheilsu barna sem ber heitið www.umhuga.is. Á nýja vefnum verður hægt nálgast upplýsingar um helstu þætti í uppeldi og aðstæðum barna og unglinga sem hafa áhrif á geðheilsu þeirra á uppvaxtarárunum.Lesa nánar
07.10.2008
Hlúðu að því sem þér þykir vænt um
Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn er föstudaginn 10. október næstkomandi. Til að halda daginn hátíðlegan verður dagskrá í Perlunni frá kl. 16.—18.00. Dagskráin er fjölbreytt og hefst með ávarpi forseta Íslands. Síðan taka við skemmtiatriði og erindi sérfræðinga um geðheilbrigðismál.Lesa nánar
09.9.2008
Kyrrðarstund til minningar um þá sem hafa fallið frá fyrir eigin hendi
Í tilefni alþjóðlegs dags sjálfsvígsforvarna verður haldin kyrrðarstund í Dómkirkjunni á morgun, 10. september 2008 frá kl. 20:00 – 20:30, á vegum Biskupsstofu, Landlæknisembættisins, Geðhjálpar og fleiri aðila.Lesa nánar
11.4.2008
Ávinningur forvarna – hvað kostar að gera ekki neitt?
Samstarfshópurinn Náum áttum heldur morgunverðarfund um ofangreint efni miðvikudaginn 16. apríl 2008, kl. 8:15 til 10:00, á Grand hóteli í Reykjavík.Lesa nánar
06.3.2008
Fjölskyldubrúin
Síðastliðinn föstudag, 29. febrúar 2008, útskrifuðust á geðsviði Landspítalans sextán heilbrigðisstarfsmenn eftir eins árs sérnám í að veita stuðning börnum sem búa við þau skilyrði að annað eða báðir foreldrar þjást af geðrænum vanda. Í útskriftarhópnum voru félagsráðgjafar, hjúkrunarfræðingar, sálfræðingur og iðjuþjálfi.Lesa nánar
29.1.2008
Morgunverðarfundur á Akureyri: Forvarnir í sveitarfélögum
Samstarfshópurinn Náum áttum heldur morgunverðarfund um forvarnir í sveitarfélögum mánudaginn 4. febrúar, kl. 9:00 til 10:45, á Hótel KEA á Akureyri.Lesa nánar
15.11.2007
Hvað er að?
Í síðustu viku kom út bæklingurinn Hvað er að? sem beint er til barna og ungmenna sem eiga foreldra með geðrænan vanda. Bæklingnum er ætlað að svara spurningum sem upp kunna að koma hjá börnum sem búa við aðstæður þar sem annað eða báðir foreldra þjást af geðrænum vanda.Lesa nánar
09.10.2007
Alþjóðageðheilbrigðisdagurinn - þverfagleg ráðstefna í Ráðhúsi Reykjavíkur
Meginviðfangsefni Alþjóðageðheilbrigðisdagsins í ár eru þær áskoranir sem aukin alþjóðavæðing og menningarlegur margbreytileiki hafa í för með sér.Lesa nánar
20.9.2007
Námskeið á Neskaupstað fyrir aðstandendur geðsjúkra 5. og 6. október nk.
Námskeið fyrir aðstandendur geðsjúkra og áhugafólk um málefni einstaklinga með geðraskanir verður haldið á Neskaupsstað 5.og 6.október nk. Að námskeiðinu standa auk Landlæknisembættisins Rauði kross Íslands, Biskusstofa, geðsvið LSH og Geðhjálp.Lesa nánar
18.9.2007
Aukning sjálfsvíga ungmenna og minni notkun þunglyndislyfja
Í septemberhefti 2007 American Journal of Psychiatry birtust niðurstöður rannsóknar um þróun sjálfsvíga ungmenna 19 ára og yngri í Bandaríkjunum og nokkrum ríkjum Evrópu eftir að þarlend heilbrigðisyfirvöld höfðu varað við aukinni sjálfsvígshættu ungmenna sem fengju meðhöndlun með þunglyndislyfjum.Lesa nánar
18.9.2007
Áfallastreituröskun (PTSD) og kransæðasjúkdómar
Í janúarhefti Archives of General Psychiatry birtust niðurstöður rannsóknar á tengslum áfallastreituröskunar (Post-traumatic stress disorder, PTSD) og kransæðasjúkdóma. Rannsakaður var stór hópur fyrrverandi hermanna sem höfðu greinst með áfallastreituröskun 12–16 árum áður en rannsókn var framkvæmd.Lesa nánar
13.9.2007
Námsdagar um foreldra í vanda og vanrækt börn
Dagana 27. og 28. september næstkomandi verður haldin ráðstefna um ofangreint efni á vegum Þerapeiu ehf í samvinnu við Landlæknisembættið. Ráðstefnan fer fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu og stendur kl. 9:15-16:00 báða dagana.Lesa nánar
15.6.2007
Norrænir fræðsludagar í Reykholti - Nordic Forum 2007
Í lok maímánuðar voru haldnir í Reykholti í Borgarfirði fræðslu- og vinnudagar um málefni fjölskyldna með geðraskanir. Þar kom saman fagfólk frá öllum Norðurlöndunum sem hefur sérhæft sig í stuðningi við fjölskyldur þar sem foreldrar eiga við geðrænan vanda að stríða. Alls komu saman í Reykholti um 70 manns.Lesa nánar
13.6.2007
Bæklingur fyrir foreldra sem þjást af geðrænum vanda
Bæklingurinn Hvernig hjálpa ég barninu mínu? eftir finnska geðlækninn Tytti Solantaus hefur verið þýddur á íslensku, en hann hefur að geyma góðar leiðbeiningar um hvernig hægt er að koma til móts við þarfir barna þegar foreldri glímir við geðræna erfiðleika.Lesa nánar
25.10.2006
Sjálfsvíg á Íslandi árið 2005
Í dag gaf Hagstofa Íslands út tölur um dauðsföll árið 2005. Samkvæmt skráningu Hagstofunnar urðu alls 33 sjálfsvíg á Íslandi á síðastliðnu ári. Af þeim sem ákváðu að taka sitt eigið líf voru 24 karlar og níu konur.Lesa nánar
09.10.2006
Geðganga á morgun, 10. október.
Alþjóðageðheilbrigðisdagurinn er á morgun, þriðjudaginn 10. október, og þá verður gengin hin árlega geðganga. Gangan í ár ber yfirskriftina „Göngum gegn sjálfsvígum“ og verður safnast saman við Hallgrímskirkju kl. 20:00.Lesa nánar
25.9.2006
Ný hugsun í geðheilbrigðismálum. Ráðstefna á alþjóða geðheilbrigðisdaginn 10. október nk.
„Vaxandi vitund - aukin von. Saman eflum við geðheilsu og drögum úr sjálfsvígum“ er yfirskrift ráðstefnu sem haldin verður í tilefni alþjóða geðheilbrigðisdagsins 10. október næstkomandi kl. 8–16. á Grand hótel í Reykjavík.Lesa nánar
15.8.2006
Bylting í bata. Ráðstefna á vegum Hugarafls.
Dagana 24. og 25. ágúst n.k. stendur Hugarafl fyrir ráðstefnu á Hótel Sögu um geðheilbrigðismál undir heitinu Bylting í bata. Verður þar fjallað um valdeflingu og bata þeirra sem eiga við geðræn vandamál að stríða.Lesa nánar
11.4.2006
Námskeið fyrir aðstandendur geðfatlaðra og áhugafólk
Tvö námskeið um málefni geðfatlaðra ætlað aðstandendum og áhugafólki verða haldin í Menntaskólanum í Kópavogi að Digranesvegi 51, Kópavogi. Hið fyrra verður 19. og 20. apríl en hið síðara 21. og 22. apríl.Lesa nánar
22.6.2005
Sjálfsvígum karla fer fækkandi
Sjálfsvígum karla yngri en 24 ára fækkaði um meira en helming á árunum 20022004 borið saman við árin 19992001. Sjálfsvíg voru að meðaltali 13,8 á hverja 100.000 íbúa í þessum aldurshópi á síðustu þremur árum, en voru að meðaltali 29,6 á ári þrjú árin þar á undanLesa nánar
28.2.2005
Veggspjöldin Hjálparvana, Svartnætti og Vonleysi fengu íslensku auglýsingaverðlaunin 2005
Auglýsing á vegum Landlæknisembættisins hlaut Lúðurinn, íslensku auglýsingaverðlaunin, á hátíðadagskrá Ímark, félags íslensks markaðsfólks 25. febrúar síðastliðinn.Lesa nánar
10.2.2005
KB banki heldur áfram stuðningi við Þjóð gegn þunglyndi
Þann 8.desember síðastliðinn veitti KB banki verkefninu Þjóð gegn þunglyndi styrk að upphæð ein milljón króna til að halda áfram því forvarnarstarfi sem Landlæknisembættið hefur staðið fyrir undanfarin ár.Lesa nánar
25.1.2005
KB banki heldur áfram stuðningi við Þjóð gegn þunglyndi
Þann 8.desember síðastliðinn veitti KB banki verkefninu Þjóð gegn þunglyndi styrk að upphæð ein milljón króna til að halda áfram því forvarnarstarfi sem Landlæknisembættið hefur staðið fyrir undanfarin ár.Lesa nánar
24.1.2005
Ráðherrafundur Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um geðheilbrigði
Dagana 12.-15. janúar var haldin viðamikil ráðstefna á vegum Evrópudeildar WHO í Helsinki um geðheilsu. Einkunnarorð ráðstefnunnar lutu að nauðsyn þess að mæta vandamálum og starfa saman að lausnum þeirra.Lesa nánar
18.1.2005
Hegðunarvandi og geðraskanir barna og unglinga
Ráðstefna á vegum Barnaverndarstofu, Barna- og unglingadeildar LSH, Miðstöðvar heilsuverndar barna og Landlæknisembættisins verður haldin á Grand Hótel í Reykjavík dagana 3. og 4. febrúar 2005.Lesa nánar
13.10.2004
Hjálp - Von - Svar
Í tengslum við alþjóðageðheilbrigðisdaginn, 10. október síðastliðinn, hafa verið gefin út þrjú veggspjöld og samsvarandi póstkort á vegum verkefnisins „Þjóð gegn þunglyndi.Lesa nánar
06.10.2004
Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn haldinn 9. október
Í tilefni alþjóða geðheilbrigðisdagsins, 10. október 2004, verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá í Reykjavík laugardaginn 9. október nk. og stendur hún frá morgni til kvölds. Þema dagsins er „Tengslin milli líkamlegrar og andlegrar heilsu.Lesa nánar
10.9.2004
Alþjóðlegur sjálfsvígsforvarnadagur
Í dag kemur út í vefútgáfu bæklingurinn "Að koma í veg fyrir sjálfsvíg og sjálfsvígstilraunir meðal unglinga" í tilefni alþjóðlegs sjálfsvígsforvarnadags Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, WHO.Lesa nánar
16.6.2004
Verkefnið Þjóð gegn þunglyndi eins árs í dag
Í dag, 16. júní, er liðið eitt ár frá því að verkefninu Þjóð gegn Þunglyndi var formlega hleypt af stokkunum með almennum borgarafundi í Smáralind. Á liðnu ári hefur verkefnið, sem er á vegum Landlæknisembættisins, sinnt víðtæku kynningar- og fræðslustarfi fyrir fagfólk og almenning um land allt.Lesa nánar
11.6.2004
Styrkur frá Evrópusambandinu
Samtökin European Alliance Against Depression (EAAD) hlutu nýverið styrk frá Evrópusambandinu til að byggja mætti upp á markvissan hátt samhæfða forvarnarstarfsemi gegn þunglyndi og sjálfsvígum í Evrópu.Lesa nánar
20.2.2004
Alltof fáir fá rétta meðferð við þunglyndi
Alltof fáir sem þjást af þunglyndi fá þá meðferð sem þeim stendur til boða í þróuðum ríkjum. Aðeins einn af hverjum sextán fær rétta meðferð.Lesa nánar
09.2.2004
Þunglyndi, lýðheilsa og forvarnir
Landlæknisembættið og verkefnið „Þjóð gegn þunglyndi boða til stuttrar ráðstefnu laugardaginn 14. febrúar n.k. undir yfirskriftinni Þunglyndi, lýðheilsa og forvarnir. Ráðstefnan verður haldin í Hringsalnum í Barnaspítala Hringsins við Hringbraut.Lesa nánar
26.1.2004
Námskeið um þunglyndi og sjálfsvígsfræði i Keflavík
Námskeið um þunglyndi og sjálfsvígsfræði verður haldið í Keflavík 28. janúar næstkomandi. Fyrirlesarar eru Salbjörg Bjarnadóttir geðhjúkrunarfræðingur, Óttar Guðmundsson geðlæknir og Wilhelm Norðfjörð sálfræðingur.Lesa nánar
26.1.2004
Námskeið á Akureyri 5. og 6. febrúar
Haldin verða tvö námskeið um þunglyndi og sjálfsvígsfræði á Akureyri dagana 5. og 6. febrúar næstkomandi á vegum verkefnisins „Þjóð gegn þunglyndi.Lesa nánar
09.1.2004
45 manns sóttu námskeið á Sauðárkróki
Námskeið á vegum verkefnisins „Þjóð gegn þunglyndi var haldið á Sauðárkróki 7. janúar sl. Þátttakendur komu frá Sauðárkróki, Hofsósi og Siglufirði.Lesa nánar
09.1.2004
Þjóð gegn þunglyndi - nýr vefur
Opnaður hefur verið nýr vefur um verkefnið „Þjóð gegn þunglyndi?.Lesa nánar
07.1.2004
Styrkur SPRON við Þjóð gegn þunglyndi
Á síðasta ári veitti stjórn Menningar- og styrktarsjóðs Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis styrk að upphæð 500.000 til verkefnisins Þjóð gegn þunglyndi og skipaði sér þannig í hóp styrktaraðila verkefnisins.Lesa nánar
10.12.2003
Námskeið um þunglyndi haldin um allt land
Undanfarna mánuði hefur Landlæknisembættið staðið fyrir námskeiðum um þunglyndi og afleiðingar þess fyrir faghópa innan heilsugæslunnar og félagsþjónustunnar, fyrir lögreglu, skólafólk og presta.Lesa nánar
19.6.2003
Vel heppnaður borgarafundur í Smáralind
Landlæknisembættið stóð fyrir almennum borgarafundi í Vetrargarðinum í Smáralind mánudaginn 16. júní sl. til að kynna fræðslu- og forvarnaverkefnið Þjóð gegn þunglyndi ? fækkum sjálfsvígumLesa nánar
16.6.2003
Samningur um stuðning Kaupþings Búnaðarbanka
Landlæknisembættið og Kaupþing Búnaðarbanki hafa gert með sér samning um stuðning Kaupþings Búnaðarbanka við verkefnið Þjóð gegn þunglyndi fækkum sjálfsvígum.Lesa nánar
16.6.2003
Síminn styrkir Þjóð gegn þunglyndi
Síminn hf og Landlæknisembættið hafa í dag gert með sér samning sem felur í sér fjárframlag Símans til stuðnings við verkefnið Þjóð gegn þunglyndi fækkum sjálfsvígum. Nemur framlag Símans til verkefnisins nú einni milljón krónaLesa nánar
13.6.2003
Þjóð gegn þunglyndi - borgarafundur í Smáralind 16. júní kl. 17:17
Almennur borgarafundur verður haldinn í Vetrargarðinum í Smáralind mánudaginn 16. júní og hefst hann kl. 17:17. Með tímasetningunni er minnt á hjálparsíma Rauða krossins 1717.Lesa nánar
03.6.2003
Þjóð gegn þunglyndi fær níu milljónir í styrk frá VÍS
Í dag undirrituðu Sigurður Guðmundsson landlæknir og Finnur Ingólfsson, forstjóri VÍS, samning til þriggja ára í tilefni þess að VÍS hefur ákveðið að gerast aðalstyrktaraðili verkefnisins Þjóð gegn þunglyndi -- fækkum sjálfsvígum.Lesa nánar