Hverjir standa að verkefninu?
Landlæknisembættið er hinn formlegi ábyrgðaraðili verkefnisins Þjóð gegn þunglyndi. Á vegum embættisins starfar fagráð um forvarnir gegn þunglyndi og sjálfsvígum, en það annast stefnumótun og skipulagningu verkefnisins. Fagráðið var þannig skipað í byrjun:
Ágústa Ingþórsdóttir námsráðgjafi
Högni Óskarsson geðlæknir
María Ólafsdóttir heilsugæslulæknir
Óttar Guðmundsson geðlæknir
Salbjörg Bjarnadóttir geðhjúkrunarfræðingur
Sigurður P. Pálsson geðlæknir
Wilhelm Norðfjörð sálfræðingur
Högni Óskarsson er formaður ráðsins og Salbjörg Bjarnadóttir er verkefnisstjóri.
Erlendir samstarfsaðilar eru geðdeild Ludvig Maximilian háskólans í München, en Ulrich Hegerl, prófessor þar og samstarfsfólk hans eru helstu hugmyndasmiðir þeirrar aðferðar sem hér er beitt. Annar samstarfsaðili er Center for the Study and Prevention of Suicide við háskólann í Rochester, New York-ríki, undir stjórn Eric Caine prófessors.
Bündnis gegen Depression
Center for the Study and Prevention of Suicide
University of Rochester Medical Center
Uppfært 26. maí 2010