Ung- og smábarnavernd
Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 2/2000
Ung- og smábarnavernd
Í kjölfar hins nýja fyrirkomulags bólusetninga barna, sbr. dreifibréf landlæknis nr. 14/1999, sem tekið var upp um síðustu áramót, eru það tilmæli landlæknis að vitjanir til barna og komur barna á heilsugæslustöðvar breytist sem hér segir.
|
Aldur barna |
Áður Aldur barna |
Áhersluþættir í fræðslu og ráðgjöf hafa einnig verið endurskoðaðir. Með þessu dreifibréfi fylgir yfirlit yfir vitjanir til barna og komur þeirra á heilsugæslustöðvar ásamt tilmælum um áhersluþætti í fræðslu og ráðgjöf við hver samskipti. Á það yfirlit að koma í stað Töflu III. Eftirlit og ónæmisaðgerðir til 6 ára aldurs, á bls. 42 í Handbók heilsugæslustöðva um ungbarnavernd (1996).
Bent er á lista sem Miðstöð ung- og smábarnaverndar á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur hefur tekið saman um fræðsluefni til foreldra og forráðamanna barna tengt hverri vitjun heim eða komu á heilsugæslustöð.
1. febrúar 2000
Landlæknir
Vitjanir til barna og komur barna á heilsugæslustöð, fræðsla og ónæmisaðgerðir
Börn skulu skoðuð á þeim aldri sem getið er um í töflu III. Mikilvægt er að börnum sé fylgt betur eftir ef þörf krefur, annað hvort með vitjunum heim eða komu á heilsugæslustöð. Í hvert skipti sem barn er skoðað skal það vigtað, mæld lengd þess og höfuðummál (til 18 mánaða aldurs) og niðurstöður færðar inn á vaxtalínurit í heilsufarsskrá.Tafla III. Eftirlit og ónæmisaðgerðir til 5 ára aldurs
|
|
|
|
Ónæmisaðgerðir |
|
7-10 daga |
H heima |
Upplýsingar um ung- og smábarnavernd. Brjósta-/pelagjöf. Helstu slysavarnir. Ef reykt er á heimilinu þá fræða börn um óbeinar reykingar. Barnamappa kynnt og afhent. |
|
|
2-3 vikna |
H heima |
Brjósta-/pelagjöf. Hreyfing og hvíld móður. Líðan foreldra eftir barnsburð. Þroski og örvun barns. Nánar um slysavarnir. |
|
|
3-4 vikna |
H heima |
Kynlíf eftir fæðingu og getnarðarvarnir. Reykingar í umhverfi barns. A og D vítamín |
|
|
6 vikna |
H og L á hgst. |
Þroski og örvun barns. Brjósta-/pelagjöf |
|
|
9 vikna |
H heima/ |
Upprifjun á fyrri fræðslu eða fræðsla um efni sem ekki vannst tími til áður. Upplýsingar um ónæmisaðgerðir. Líðan foreldra eftir barnsburð. |
|
|
3 mánaða |
H og L á hgst. |
Brjósta-/pelagjöf. Þroski og örvun barns. Upplýsingar um aukaverkanir eftir bólusetningu. |
PaDT+Hib+IBV |
|
5 mánaða |
H á hgst. |
Brjósta-/pelagjöf, önnur næring. Svefn og svefnvandamál. Línað móður. Hreyfiþroski barns. |
PaDT+Hib+IPV |
|
6 mánaða |
H og L á hgst. |
Mataræði. Slysavarnir. Tanntaka. |
|
|
8 mánaða |
H á hgst. |
Tannvernd. Mataræði. Þroski og örvun barns. Málörvun. |
|
|
10 mánaða |
H og L á hgst. |
Svefn. Agi og ástrík leiðsögn. Skór. |
|
|
12 mánaða |
H á hgst. |
Þroski og örvun barns. Slysavarnir |
PaDT+Hib+IPV |
|
18 mánaða |
H og L á hgst. |
Slysavarnir. Hreinlætisvenjur. Agi. Upplýsingar um aukaverkanir eftir bólusetningu. Hreyfing og leikir. Örvun barns Reykingar og áfengis- og vímuefnanotkun í umhverfi barns |
MMR |
|
3 1/2 árs |
H og L á hgst. |
Slysavarnir. Sjónvarpsáhorf. Líkamleg áreitni. Mataræði. Tannvernd. Svefnvenjur. Reykingar og áfengis- og vímuefnanotkun í umhverfi barns. |
|
|
5 ára |
H og L á hgst. |
Útivist og hreyfing. Slysavarnir. |
PaDT |
PaDT+Hib+IPV: Kíkhósti, barnaveiki, stífkrampi, haemophilus influenzae b, mænusótt.
MMR: Rauðir hundar, mislingar, hettusótt.
PaDT: Kíkhósti, barnaveiki, stífkrampi.
H: hjúkrunarfræðingur L: læknir Hgst: heilsugæslustöð.
Fræðsluefni: Sjá nánar leiðbeinandi lista yfir fræðsluefni og fræðslu sem veitt er í ung- og smábarnavernd.
Bólusetningar: Sjá nánar Leiðbeiningar um breytingar á ungbarna-bólusetningum eftir 1. janúar 2000.
Uppfært 4. mars 2007