Frumustrok frá leghálsi

Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 1/2004
Tilmæli landlæknis

Frumustrok frá leghálsi.

Með þjónustusamningi við Krabbameinsfélagið hefur heilbrigðisráðuneytið að höfðu samráði við landlækni falið Leitarstöð Krabbameinsfélagsins að annast skráningu allra frumustroka sem tekin eru vegna skipulegrar eða óskipulegrar leitar að leghálskrabbameini. Tilgangur þessarar skráningar er tvíþættur. Í fyrsta lagi að fylgjast með mætingu til leitar og í öðru lagi að kanna hvort eftirfylgni og meðferð sé í samræmi við gildandi starfsreglur (Læknablaðið febrúar 2004) sem byggja á bestu fáanlegu þekkingu og reynslu.

Landlæknisembættið beinir þeim tilmælum til lækna er taka frumustrok utan leitar að upplýsa konur um eftirlitshlutverk Krabbameinsfélagsins og koma upplýsingum um niðurstöður framhaldsgreiningar og meðferðar til Leitarstöðvar.


  

Til  heilsugæslulækna, heimilislækna,
yfirlækna sjúkrahúsa, krabbameinslækna
og kvensjúkdómalækna

 12. febrúar 2004
Landlæknir

Uppfært 4. mars 2007


 

 




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli