Notkun tölvupósts

Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 2/2004
Tilmæli landlæknis

Notkun tölvupósts.

Rétt þykir að ítreka að ekki sé notaður tölvupóstur við sendingu á sjúkraskrám eða öðrum viðkvæmum upplýsingum fram til þess tíma að komið hefur verið á sérstökum öruggum flutningsleiðum fyrir rafræn skilaboð. Ekkert er því þó til fyrirstöðu að tímapantanir eða almennar upplýsingar frá lækni til sjúklings eða tímapantanir sjúklings fari fram um tölvupóst, enda sé sjúklingi ljóst að öryggi slíkra boðskipta sé ótryggt.

12. febrúar 2004
Landlæknir

Til sjúkrahúsa, heilbrigðisstofnana,
heilsugæslustöðva og læknastofa.

Uppfært 4. mars 2007




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli