Bílastæðiskort fyrir fatlaða

Dreifibréf Landlæknisembættisins Nr. 3/2004


Efni: Bílastæðiskort fyrir fatlaða.

Samkvæmt reglugerð nr. 369/2000 og 592/2002 um útgáfu og notkun stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða er skilyrði fyrir útgáfu stæðiskorts að umsækjandi hafi

„annaðhvort sem ökumaður sérstaka þörf á ívilnun til að leggja ökutæki vegna heimilis, vinnu eða annarrar starfsemi vegna þess að hann getur ekki gengið eða á mjög erfitt með að hreyfa sig nokkurn spöl eða að hann hafi sem farþegi sérstaka þörf á sams konar ívilnun af sömu ástæðu.?

Stæðiskort fyrir hreyfihamlaða veitir, í sambandi við flutning á þeim sem fengið hefur slíkt kort útgefið, heimild til að leggja ökutæki hvar sem er á landinu í bifreiðastæði sem ætlað er fyrir fatlaða og auðkennt er með þar til gerðu umferðarmerki.

Umsækjandi ritar umsókn sína á eyðublað sem lögreglustjóri lætur í té og sendir síðan til lögreglustjóra (ath. ekki Tryggingastofnunar ríkisins) þar sem umsækjandi á lögheimili eða dvelur að jafnaði og skal læknisvottorð fylgja umsókninni.

  12. febrúar 2004
Landlæknir

Til heilbrigðisstofnana, heilsugæslustöðva og sjálfstætt starfandi heimilislækna

Uppfært 4. mars 2007

 


 




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli