Lyfseðlar sendir með myndsendi
Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 4/2004
Tilmæli landlæknis
Efni: Lyfseðlar sendir með myndsendi (faxtæki).
Samkvæmt 29. gr. reglugerðar nr. 111/2001 með áorðnum breytingum um gerð lyfseðla og ávísun lyfja er „Útgefanda lyfseðils heimilt að senda lyfseðil í lyfjabúð með rafrænum hætti eða myndsendingu. Þegar lyfseðlar eru sendir með rafrænum hætti skal það gert á tryggilegan hátt og þannig að ljóst sé hver sendandinn er.
Frumrit myndsends lyfseðils skal greinilega auðkennt og merkt orðinu „Myndsent" fyrir sendingu og er myndsendur lyfseðill ógildur að öðrum kosti. Óheimilt er að afgreiða lyf gegn frumriti myndsends lyfseðils.
Óheimilt er að ávísa með myndsendum lyfseðli eða rafrænum lyfseðli eftirritunarskyldum lyfjum og lyfjum sem ekki hefur verið veitt markaðsleyfi fyrir.
Landlæknisembættið vill jafnframt beina þeim tilmælum til lækna að nauðsynlegt sé að senda titilblað með lyfseðilsblaðinu til að auðkenna nafn sendanda/stofnunar. Þar sé fjöldi blaðsíðna tilgreindur og sendingin sé merkt sem trúnaðarmál.
Seltjarnarnesi, 23. febrúar 2004
Landlæknir
Til lækna
Uppfært 3. mars 2007