Birgðir bóluefna
Dreifibréf Landlæknisembættisins Nr. 6/2004
Ábending sóttvarnalæknis vegna birgðahalds bóluefna
Af gefnu tilefni vill sóttvarnalæknir brýna fyrir heilbrigðisstarfsmönnum sem sjá um bólusetningar á heilsugæslustöðvum að fylgjast vel með birgðum bóluefna á sinni stöð og tryggja að bóluefni fyrnist ekki.Ennfremur er áréttað að bóluefni, sem eru lyf, séu geymd við fullnægjandi aðstæður í samræmi við meðfylgjandi reglugerð nr. 241 /2004.
Stjórnendur sjúkrahúsa og annarra heilbrigðisstofnanna bera ábyrgð á að ákvæðum reglugerðar þessarar sé hlítt.
5. apríl 2004
Sóttvarnalæknir
Uppfært 4. mars 2007