Bólusetning gegn inflúensu 2004

Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 7/2004
Tilkynning frá sóttvarnalækni

 

Bólusetning gegn influenzu


Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin ráðleggur að inflúenzubóluefni á norðurhveli fyrir tímabilið 2004-2005 innihaldi eftirtalda veirustofna (WHO Weekly Epidemiological Record, 2004, 79, 85?92):

  •  A/Nýju Caledoniu/20/99 (H1N1) - lík veira
  •  A/Fujian/411/2002 (H3N2) - lík veira*
  •  B/Shanghai/361/2002 - lík veira**

*  Veiran sem notuð er um þessar mundir til bóluefnisgerðar er A/Wyoming/3/2003. A/Kumamoto/102/2002 er einnig tiltæk sem bóluefnisveira.

** Þeir bóluefnisstofnar sem hægt er að nota til bóluefnisgerðar eru B/Shanghai/361/2002 og B/Jiin/20/2003 (sem er B/Shanghai/361/2002 ? lík veira).

Hverja á að bólusetja?

  • Alla einstaklinga eldri en 60 ára.
  • Öll börn og fullorðna sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
  • Starfsfólk heilbrigðisþjónustu og aðra þá sem daglega annast fólk með aukna áhættu.

    Hvatt er til þess að heilsugæslustöðvar og aðrar heilbrigðisstofnanir hugi sem fyrst að pöntun bóluefna svo þær geti hafist um mánaðarmótin september ? október haustið 2004 og ekki komi til bóluefnisskorts. Heilsugæslustöðvarnar eru hvattar til að kalla sem fyrst inn að hausti til bólusetninga ofannefnda áhættuhópa. Hvatt er til þess að heilbrigðisstofnanir bjóði starfsfólki sínu bólusetningar.

    Bólusetning gegn pneumókokkasýkingum

    Sóttvarnalæknir vill einnig minna á bólusetningar gegn pneumókokkasýkingum á 10 ára fresti til handa öllum þeim sem eru eldri en 60 ára og á 5 ára fresti fyrir einstaklinga sem eru í sérstökum áhættuhópum.

     

    5. apríl 2004
    Sóttvarnalæknir


 

Sent: Heilsugæslustöðvum, heimilislæknum í Reykjavík, yfirlæknum og hjúkrunarforstjórum sjúkrahúsa, lyfjabúrum sjúkrahúsa, læknastofum, stofnunum fyrir aldraða,  Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Lyfjastofnun.


 

Uppfært 3. mars 2007




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli