Bólusetning gegn inflúensu 2004 - No.10

Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 10/2004
Tilkynning frá sóttvarnalækni

 

Bólusetning gegn influenzu, sbr. dreifibréf nr. 7/2004, dags. 5. apríl 2004


Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin ráðleggur að inflúenzubóluefni á norðurhveli fyrir tímabilið 2004-2005 innihaldi eftirtalda veirustofna (WHO Weekly Epidemiological Record, 2004, 79, 85?92):

  •  A/Nýju Caledoniu/20/99 (H1N1) - lík veira
  •  A/Fujian/411/2002 (H3N2) - lík veira*
  •  B/Shanghai/361/2002 - lík veira**

*  Veiran sem notuð er um þessar mundir til bóluefnisgerðar er A/Wyoming/3/2003. A/Kumamoto/102/2002 er einnig tiltæk sem bóluefnisveira.

** Þeir bóluefnisstofnar sem hægt er að nota til bóluefnisgerðar eru B/Shanghai/361/2002 og B/Jiin/20/2003 (sem er B/Shanghai/361/2002 ? lík veira).

Hverja á að bólusetja?
  • Alla einstaklinga eldri en 60 ára.
  • Öll börn og fullorðna sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
  • Starfsfólk heilbrigðisþjónustu og aðra þá sem daglega annast fólk með aukna áhættu

  • Heilsugæslustöðvarnar eru hvattar til að kalla sem fyrst inn að hausti til bólusetninga ofannefnda áhættuhópa. Hvatt er til þess að heilbrigðisstofnanir bjóði starfsfólki sínu bólusetningar.


    Bólusetning gegn pneumókokkasýkingum

    Sóttvarnalæknir vill einnig minna á bólusetningar gegn pneumókokkasýkingum á 10 ára fresti til handa öllum þeim sem eru eldri en 60 ára og á 5 ára fresti fyrir einstaklinga sem eru í sérstökum áhættuhópum.

     

    3. september 2004
    Sóttvarnalæknir

     

          Sent: Heilsugæslustöðvum, heimilislæknum í Reykjavík, yfirlæknum og hjúkrunarforstjórum sjúkrahúsa, lyfjabúrum sjúkrahúsa, læknastofum, stofnunum fyrir aldraða.
          Ennfremur Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Lyfjastofnun, Læknablaðinu og Tímaritinu Hjúkrun.

          Uppfært 3. mars 2007




        Aukaval


        Leturstærðir


        Leit

        Leitarvél
        Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli