Eyðublöð v/fóstureyðinga og ófrjósemisaðgerða 2004

Dreifibréf Landlæknisembættisins Nr. 11/2004

Ný umsóknareyðublöð vegna fóstureyðinga og ófrjósemisaðgerða


Samkvæmt 13. og 19. gr. laga nr. 25/1975 um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir skal umsókn, greinargerð og vottorð rituð á þar til gerð eyðublöð sem landlæknir gefur út. Samkvæmt 24. gr. sömu laga skal senda landlækni greinargerð um framkvæmd aðgerðar að henni lokinni.

Sama eyðublaðið hefur verið í notkun frá gildistöku laganna og var umsókn um fóstureyðingu og umsókn um ófrjósemisaðgerð á sama blaðinu. Eyðublaðið hefur verið í endurskoðun í samvinnu við kvennadeild Landspítala-háskólasjúkrahúss um nokkurt skeið og er þeirri endurskoðun nú lokið. Meðfylgjandi eru tvö ný eyðublöð, annað vegna fóstureyðinga og hitt vegna ófrjósemisaðgerða og taka eyðublöðin gildi frá og með 1. október 2004. Eyðublöðin fást hjá Landlæknisembættinu og á heimasíðu embættisins á slóðinni (Eyðublöð).

Eins og sjá má er ekki lengur um eitt sameiginlegt eyðublað að ræða fyrir þessar aðgerðir, heldur tvö sérstök umsóknareyðublöð. Því þarf að fylla út sérstaka umsókn fyrir hvora aðgerð fyrir sig, ef gera á báðar aðgerðir á sama tíma.

Nauðsynlegt er að eyðublöðin séu vandlega útfyllt og vel frá þeim gengið með öllum nauðsynlegum undirskriftum. Samkvæmt upplýsingum frá kvennadeild Landspítala-háskólasjúkrahúss verður ekki unnt að sinna umsóknum sem berast frá læknum utan sjúkrahússins nema þær séu vel útfylltar. Séu umsóknir ekki útfylltar eins og til er ætlast verður umsækjendum beint aftur til tilvísunaraðila, þannig að gengið sé fyllilega frá umsókninni þar.

Að aðgerð lokinni skal senda landlækni útfyllt eyðublöð með upplýsingum um framkvæmd aðgerðar og fylgikvilla, ef við á. Séu eyðublöðin ekki útfyllt eins og til er ætlast verða þau send til baka.

Til þess að stuðla að vandaðri skráningu hafa verið gerðar sérstakar leiðbeininingar um útfyllingu eyðublaðanna. Í leiðbeiningunum er fjallað um sérhvern skráningarreit sem þarfnast útfyllingar. Vinsamlegast kynnið ykkur leiðbeiningarnar vel.

9. september 2004
Landlæknir

Sent: læknum og félagsráðgjöfum


 

Uppfært 4. mars 2007




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli