Varðveisla sýna í lífsýnasöfnum

Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 1/2005
Tilmæli landlæknis

 

Upplýsingagjöf um varðveislu sýna í lífsýnasöfnum


Samkvæmt lögum nr. 110/2000 um lífsýnasöfn er landlækni gert að kynna ítarlega fyrir almenningi ákvæði laganna, sérstaklega ákvæðið um ætlað samþykki lífsýnisgjafa vegna þjónusturannsóknar, svo og rétt sjúklinga samkvæmt 7. og 13. grein laganna.

Meðfylgjandi eru gögn sem varða upplýsingar til almennings varðandi hugsanlega geymslu lífsýna, sem tekin eru í þjónustuskyni, og varðveislu þeirra í lífsýnasafni , sem fengið hefur leyfi Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis,

Óskað er eftir því að blaðið, sem merkt er "Frá landlækni" sé hengt upp í á áberandi stað í biðstofu og á sýnatökustað. Heimilt er að ljósrita blaðið ef þörf er á fleiri eintökum.

Æskilegt er að lögin um lífsýnasöfn séu til staðar hjá móttökuritara, ef einhver óskar eftir.

Fræðslugrein fyrir almenning um lögin, sem birtist í Morgunblaðinu á sínum tíma, fylgir einnig og má ljósrita ef með þarf.

Úrsagnareyðublöð má ljósrita eftir meðfylgjandi blaði og geyma hjá móttökuritara eða benda á vefsíðu Landlæknisembættisins, en þar er að finna úrsagnareyðublað og allar nánari upplýsingar, þar á meðal upplýsingar um þau fyrirtæki, sem fengið hafa leyfi til reksturs lífsýnasafna. Einnig má hafa samband við Landlæknisembættið í síma 5101900, Ágústu Benný Herbertsdóttur verkefnisstjóra eða Matthías Halldórsson aðstoðarlandlækni.


 

16. mars 2005
Landlæknir


Sent til heilbrigðisstofnana og læknastofa

Sjá enn fremur: Þátttaka í vísindarannsóknum

Uppfært 28. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli