Framhaldsnám sjúkraliða
Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 2/2005
Sjúkraliðar með árs framhaldsnám í öldrunarhjúkrun
Með tilkomu framhaldsnáms sjúkraliða í öldrunarhjúkrun er stigið stórt skref í þá átt að mæta auknum þörfum öldrunarþjónustunnar um nægan fjölda vel menntaðra starfsmanna.
Í janúar 2002 hófst tveggja anna framhaldsnám í öldrunarhjúkrun fyrir sjúkraliða við Fjölbrautarskólann við Ármúla. Nú hafa 33 sjúkraliðar lokið slíku framhaldsnámi og því nauðsynlegt að fyrir liggi hvaða viðfangsefni sjúkraliðar með þetta nám eiga að geta leyst. Námið miðar að því að auka færni og þekkingu sjúkraliða til að standast kröfur öldrunarþjónustunnar um nákvæmni, áreiðanleika og fagleg vinnubrögð. Námið miðar einnig að því að efla sjálfstæði sjúkraliða í starfi og búa þá undir aukna ábyrgð á sviði öldrunarþjónustu og að taka að sér flóknari verkefni í umönnun aldraðra innan stofnana sem utan.
Viðfangsefni sem sjúkraliðar með fyrrgreint nám eiga að geta leyst:
- Sinnt sjúklingum og skjólstæðingum í samræmi við hjúkrunaráætlun og tekið ákvörðun um hvenær kalla skuli út aðstoð.
- Metið ástand sjúklings, þ.e. alvarleg frávik frá venjubundnu ástandi og metið hvenær slík frávik þarfnast viðbragða.
- Forgangsraðað tilteknum verkum og metið hvað er brýnast hverju sinni.
- Útdeilt verkum til annarra sjúkraliða og ófaglærðs starfsfólks og fylgst með framkvæmd þeirra verka.
- Verið tengiliður við nýja sjúkraliða og ófaglært starfsfólk og leiðbeint í starfsaðlögun.
- Sinnt auknu eftirliti með líðan skjólstæðinga og metið árangur meðferðar.
- Skráð athuganir í hjúkrunarskrá og beitt viðurkenndum aðferðum hjúkrunarskráningar.
- Eftirtalda verkhæfða þætti á ábyrgð hjúkrunarfræðings í samræmi við hjúkrunaráætlun:
a) Gefið lyf að undanteknum lyfjum í vöðva, undir húð eða í æð sem læknir hefur ávísað og lyfjafræðingur, lyfjatæknir
eða hjúkrunarfræðingur hefur tekið til.
b) Gefið lyf að undanteknum lyfjum í vöðva, undir húð eða í æð sem læknir hefur ávísað eftir þörfum (PN) fyrir tiltekinn
einstakling í tiltekinn tíma. Þó mega sjúkraliðar gefa insúlín með insúlínpennum.
c) Sinnt tilteknum sáraskiptingum og húðmeðferð.
d) Veitt súrefnismeðferð og skráð súrefnismettun.
e) Beitt sogi í efri loftvegum.
f) Gefið næringu um sondu.
g) Sett upp þvaglegg og tæmt blöðru með þvaglegg hjá einstaklingum sem eru með eðlilega þvagrás.
h) Meðhöndlað stómíu.
i) Sinnt umhirðu og eftirliti með vökvadælum og útæðaleggjum.
j) Tekið hjartalínurit.
k) Gert einföld öndunarpróf.
l) Mælt blóðsykur og sykurmagn í þvagi.
Í samræmi við lög um sjúkraliða nr. 58/1984 með síðari breytingum og reglugerð nr. 897/2001 um menntun, réttindi og skyldur sjúkraliða starfa sjúkraliðar með árs framhaldsnám í öldrunarhjúkrun jafnt og aðrir sjúkraliðar undir stjórn hjúkrunarfræðinga og bera ábyrgð á störfum sínum gagnvart þeim.
Landlæknir
Sent til: Heilbrigðisstofnana, sjúkrahúsa, heilsugæslustöðva, hjúkrunar- og öldrunarstofnana
Uppfært 28. nóvember 2008