Tilkynningar um andlát til lögreglu
Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 3/2005
Fyrirmæli landlæknis
um hvaða andlát þarf að tilkynna til lögreglu skv. lögum um dánarvottorð, krufningar o.fl. nr. 61/1998 og reglugerð nr. 248/2001
- Dauðsfall þar sem grunur er um refsivert athæfi, óháð tímalengd frá því að verknaður var framinn þar til viðkomandi lést og óháð því hvort áverki/áverkar eru bein dánarorsök eða samverkandi þáttur í dauða.
- Dauðsfall þar sem grunur er um slys eða óviljaverk, hvort heldur dauðsfallið tengist áfengis- eða vímuefnanotkun eða ekki, óháð tímalengd frá því atviki þar til viðkomandi lést og óháð því hvort áverki telst bein dánarorsök eða
samverkandi þáttur dauða. - Dauðsfall þar sem grunur er um sjálfsvíg, óháð tímalengd frá því að atburðurinn gerðist og þar til viðkomandi lést.
- Dauðsfall án sjúkdómsaðdraganda, sem skýrir andlátið.
- Dauðsfall á vinnustað.
- Dauðsfall í fangelsi.
- Dauðsfall sem tengist læknisaðgerð eða lyfjagjöf óháð tímalengd frá því atviki.
- Dauðsfall sem verður innan við 24 klst. frá innlögn á bráðamóttöku, hafi ekki á þeim tíma fengist fullnægjandi skýring á andlátinu, enda þótt ekkert ákvæði ofangreindra liða 1-7 eigi við.
- Fæðing andvana barns (meðganga orðin fullar 22 vikur og þyngd barns 500 g eða meira) þar sem saga er um áfengismisnotkun og eða eiturlyfjaneyslu móður.
- Fundið lík.
Dauðsföll sem falla undir lið 1 - 10 að ofan skulu tilkynnt viðeigandi lögregluembætti í síma 112 og biðja um fjarskiptamiðstöð lögreglu.
Skv. lögum skal læknir sem annaðist sjúklinginn eða læknirinn sem kom að andlátinu tilkynna það til lögreglu.
Skv. lögum tekur lögreglan ákvörðun um nauðsyn réttarkrufningar en ekki læknar. Þó svo atvikið sé tilkynningarskylt til lögreglu leiðir það ekki alltaf til réttarkrufningar.
31. maí 2005
Landlæknir
Uppfært 28. nóvember 2008